Rifrildið við Beckham orsakaði átröskun og þunglyndi

Mel C segir rifrildið við Beckham hafa verið upphafið að …
Mel C segir rifrildið við Beckham hafa verið upphafið að öllum hennar vandamálum. AFP

Spice Girls-stjarnan Mel C segir að orsakavaldurinn að þunglyndi hennar og átröskun hafi verið rifrildi við Victoriu Beckham í upphafi ferils Spice Girls.

Mel C, sem einnig er þekkt undir nafninu Sporty Spice en hennar rétta nafn er Melanie Chrisholm, hefur áður tjáð sig um þunglyndið og átröskunina en aldrei sagt hvað það var sem olli því. 

Í nýju viðtali við BBC Radio 4 segir hún að þetta hafi allt byrjað með einu rifrildi í árdaga hljómsveitarinnar. Hún var næstum því rekin úr hljómsveitinni fyrir að eiga í orðaskaki við Beckham á Brit-verðlaunahátíðinni árið 1996. 

Hún segir í viðtalinu við BBC Radio 4 að henni hafi fundist uppákoman gríðarlega vandræðaleg og að í kjölfarið hafi hún orðið mjög hörð við sjálfa sig. 

„Mér var tjáð að ef ég hagaði mér svona aftur þá yrði ég rekin úr hljómsveitinni,“ sagði Chrisholm. 

„Ég held að það hafi verið upphafið að öllum mínum vandamálum því ég varð svo hörð við sjálfa mig. Ég gat ekki leyft mér að slaka á því ef ég myndi gera það myndi allt fara í vaskinn,“ sagði Chrisholm. 

Hún brotnaði niður í viðtalinu þegar hún sagði blaðamanninum Lauren Lavern frá því hvernig henni fór að líða verr og verr og fór að þróa með sér átröskun.

„Ég fór frá því að vera með lystarstol yfir í lotugræðgi. Ég fór til læknisins og hann greindi mig með þunglyndi. Það var mikill léttir fyrir mig því ég hugsaði „Ó það er til nafn yfir þetta og ég get fengið hjálp“,“ sagði Chrisholm.

Mel B ásamt hinum Kryddpíunum.
Mel B ásamt hinum Kryddpíunum.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson