Affleck brotnaði niður við tökur

Ben Affleck brotnaði niður við tökur á The Way Back.
Ben Affleck brotnaði niður við tökur á The Way Back. ROBYN BECK

Leikarinn Ben Affleck brotnaði niður við tökur á nýjustu kvikmynd sinni The Way Back. Söguhetja kvikmyndarinnar glímir við alkóhólisma líkt og Affleck og stendur í skilnaði. 

„Það var erfitt að gera þessa kvikmynd. Stundum var það sársaukafullt. Og stundum skammaðist ég mín. Og stundum trúði ég ekki að líf mitt hafi líkst þessu lífi,“ sagði Affleck í viðtali við AP

Affleck hefur á síðustu árum tekist á við alkóhólismann og farið í meðferðir. Hann skildi við eiginkonu sína Jennifer Garner fyrir nokkrum árum en hún hefur stutt hann í baráttunni við fíknina. 

„Ég á betra samband við börnin mín í dag heldur en fyrir þremur árum. Ég á betra samband við fyrrverandi eiginkonu mína í dag heldur en fyrir þremur árum held ég,“ sagði Affleck en þau Garner eiga þrjú börn saman, þau Violet, Seraphinu og Samuel. 

„Ég held ég sé áhugaverðari manneskja því mesti þroskinn sem ég hef tekið út er vegna sársauka,“ sagði Affleck. 

Honum var upphaflega boðið að leikstýra kvikmyndinni en hann bauð Gavin O'Conner það hlutverk. Þeir Affleck og O'Conner höfðu unnið saman áður við kvikmyndina The Accountant en O'Conner var ekki kunnugt um hversu alvarlegur vandi Affleck er. 

„Þegar við byrjuðum að undirbúa kvikmyndina fór hann í meðferð. Hann féll eiginlega. Þannig að við vorum að undirbúa myndina á meðan hann var í meðferð og héldum að þetta myndi ekki ganga upp,“ sagði O'Conner. 

„En hann vildi samt halda áfram. Þegar hann kláraði meðferðina var hann mjög hrár og berskjaldaður og ég held að hann hafi líka verið smá týndur þar sem hann var að horfast í augu við djöflana sína,“ sagði O'Conner.

Atriði þar sem persóna Affleck reynir að bjarga hjónabandi sínu hafði mikil áhrif á O'Conner og alla sem unnu að kvikmyndinni. 

„Það var örugglega önnur taka af atriðinu, Ben var nýbúinn að brotna saman. Ég fæ bara gæsahúð af að hugsa um það. Það var eins og stíflan hefði brotnað og allt flæddi út. Ég man að tökumennirnir og allir frusu, að horfa á hann opna sál sína. Þetta var augljóslega raunverulegt. Hann sagði fullt af hlutum sem hann hefur örugglega þurft að segja í sínu persónulega lífi,“ sagði O'Conner. 

Ben Affleck og Jennifer Garner eiga þrjú börn saman.
Ben Affleck og Jennifer Garner eiga þrjú börn saman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson