Árný í Gagnamagninu á tvífara í útlöndum

Árný Fjóla til vinstri og Zoë Tomalin til hægri.
Árný Fjóla til vinstri og Zoë Tomalin til hægri. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan og Eurovision-farinn Árný Fjóla Ásmundsdóttir á sér tvífara í útlöndum. Meintur tvífari hennar, Zoë Tomalin, vakti athygli á málinu á Twitter. 

Tomalin segist hafa verið að kynna sér framlag Íslands í Eurovision þegar hún áttaði sig á því að þær Árný væru nákvæmlega eins. Hún birti mynd á Twitter til að sanna mál sitt og segjast margir sjá líkindin. 

Tomalin er af breskum ættum og af samfélagsmiðlum að dæma er hún einnig í skemmtanabransanum en hún lýsir sér sem brandarasmið á Twitter.

Ekki nóg með það að þær séu líkar þá segir Tomalin að þær séu nákvæmlega eins í töktum. Daði hefur svarað tístinu með hlæjandi broskarli og merkti eiginkonu sína í færsluna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson