Giftist 16 ára og nú skilin

Þegar Stodden var 16 ára giftist hún Doug Hutchison sem …
Þegar Stodden var 16 ára giftist hún Doug Hutchison sem var þá 50 ára. skjáskot/Instagram

Courtney Stodden, sem gekk í hjónaband aðeins 16 ára, greindi frá því í gær að hún og eiginmaður hennar Doug Hutchison væru skilin. 

Stodden og Hutchison giftu sig fyrir 9 árum, þegar hún var 16 ára og hann 50 ára. Hjónaband þeirra var ekki dans á rósum að því er fram kemur í tilkynningu Stodden á Instagram. Hún segir hann hafa beitt hana andlegu ofbeldi síðustu árin. 

„Í dag er 3. mars 2020. Í dag er ég formlega skilin við leikarann Doug Hutchison. Þetta er tilfinningaþrunginn dagur fyrir mig,“ skrifar Stodden í færslu sinni. Hún birti einnig mynd af þeim hjónum á brúðkaupsdaginn. 

„Ég lít á þessa mynd og hugsa til baka og mér líður eins og hann hafi notfært sér mig. Ég hef verið hrædd að tala um þessar tilfinningar og að vera beitt andlegu ofbeldi í nærri því tíu ár því ég var barn og hann var 50 ára þegar við giftumst. En ég er kona núna og það er tími til kominn að ég fari í „stóru-stelpu-buxurnar“ mínar og tjái mit um þetta. Mér hefur liðið eins og ég hafi verið föst í gildru,“ skrifar Stodden.

View this post on Instagram

It’s March 3rd, 2020 - today I am officially divorced from actor Doug Hutchison. It’s an emotional day for me. God only knows how he’s feeling, but I can tell you that it’s for the better. I look back at this picture and feel absolutely taken advantage of. I’ve been scared to even speak up about feeling groomed or being verbally abused during the almost 10 year marriage because I was a child and he was 50 when we married but I’m a woman now and it’s time for me to put my big girl pants on and speak on this matter. I’ve felt completely trapped, manipulated and at times abandoned by adults // growing up in such an environment — it became a lonely and dark place. Stay tuned for my book. And to Doug... I’ll always love you; yet I’ll always be angry. You’ve left me — a child woman, feeling belittled and confused. These things I shall overcome. I wish you well. But please don’t ever do this to another minor again. It’s not right... even if the parent signs off. Wait a respectable amount of time before marrying. Children aren’t on your level. I’ll always love you regardless. Be better. As shall I.

A post shared by Courtney Stodden (@courtneyastodden) on Mar 3, 2020 at 12:11pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson