Tom Hanks með kórónuveiruna

Leikarinn Tom Hanks og eiginkona hans, Rita Wilson.
Leikarinn Tom Hanks og eiginkona hans, Rita Wilson. AFP

Leikarinn Tom Hanks og eiginkona hans, Rita Wilson, eru með kórónuveiruna. Þessu greinir Hanks frá á Instagram, en hjónin eru stödd í Ástralíu um þessar mundir.

Hanks lýsir því að þau hafi leitað læknisráðs eftir að þau fundu fyrir einkennum kórónuveirunnar í Queensland. Úr þeim hafi verið tekið sýni vegna veirunnar, sem reyndust jákvæð og eru hjónin í einangrun.

Eins og áður segir voru Hanks og Wilson stödd í Ástralíu, en þar var Hanks að vinna að kvikmynd um líf Elvis Presley.

„Við vorum svolítið þreytt, vorum með kvef og beinverki. Rita fékk hroll sem kom og fór. Smávegis hiti líka. Til þess að bregðast rétt við, eins og heimurinn þarf á að halda núna, létum við taka úr okkur sýni vegna kórónuveirunnar, sem reyndust jákvæð,“ skrifar Hanks á Instagram, en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar lýsti kórónuveirufaraldurinn heimsfaraldur í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson