Finnur til mikillar gremju í garð föður síns

Britney Spears er pirruð út í föður sinn.
Britney Spears er pirruð út í föður sinn. AFP

Tónlistarkonan Birtney Spears er sögð finna til mikillar gremju í garð föður síns. Faðirinn, Jamie Spears, er forráðamaður hennar og hefur verið frá árinu 2008.

Britney hefur notið lífsins fyrir utan kastljósið síðustu ár og er ekki með það á dagskránni að gefa út nýja tónlist, en hún hefur ekkert gefið út í um fjögur ár. Ástæða þess að söngkonan hefur ekki viljað gefa út tónlist og skapa sér tekjur er gremja í garð föðurins.

„Britney hefur sagt að hún vilji ekki vinna meira þar sem hún vill ekki halda áfram að vera undir stjórn föður síns. Hún þolir ekki að faðir hennar fái greitt fyrir að vera forráðamaður hennar, en hann fær um 10 þúsund bandaríkjadali á mánuði fyrir að hafa yfirumsjón með fjármálum hennar,“ sagði heimildarmaður UsWeekly.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler