Helgi Björns skemmtir landanum heima í stofu

Helgi Björns mun skemmta landanum annað kvöld.
Helgi Björns mun skemmta landanum annað kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna munu halda uppi stuðinu á heimilum Íslendinga annað kvöld. Laugardagskvöldið 21. mars fer í sögubækurnar sem fyrsta laugardagskvöldið í samkomubanni Íslendinga.

Á laugardagskvöldið og ætla þeir að efna til kvöldvöku á heimilum landsmanna með aðstoð Sjónvarps Símans og mbl.is. Þar ætlar Helgi að syngja nokkur af þekktustu lögunum sínum í bland við perlur úr dægurlagasögunni okkar. Kvöldvakan hefst klukkan 20:00 og stendur í klukkutíma og sérstakur gestur Helga verður söngkonan Salka Sól.

Tónleikunum verður streymt beint hér á mbl.is annað kvöld.

„Við verðum aðeins að lyfta okkur á kreik sem þjóð, þetta er búin að vera þung vika að fara í gegnum. Við erum þó á allan hátt að fara eftir fyrirmælum og öll viljum við standa okkar plikt í almannavörnunum en við viljum líka aðeins fá að líta upp úr þessu og skemmta okkur aðeins og hrista okkur,“ segir Helgi aðspurður um útsendinguna.

„Ég er með lítið mjög vel skipað band og vandaðan lagalista og þjóðin fær að velja lög á dagskrána í gegnum samfélagsmiðlana. Þannig að það fá allir óskalag og þetta verður bara falleg kvöldvaka.“ 

Eins og Helgi kom inn á verður farið að öllum fyrirmælum Almannavarna og tveggja metra bil á milli liðsmanna sveitarinnar og þeirra sem koma að útsendingunni en Helgi sem slíkur aldrei nær þjóðinni. 

„Þetta verður bara gaman og það geta allir verið með, hvar sem er á landinu og hvernig sem staðan er. Nú syngjum við saman á laugardagskvöld öll sem eitt,“ segir Helgi.

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler