Ed O'Brian, gítarleikari bresku hljómsveitarinnar Radiohead, tilkynnti um það á samfélagsmiðlum í gærkvöldi að líklega væri hann með kórónuveiruna. Hann segist hafa tapað lyktar- og bragðskyni en að öðru leyti séu einkennin svipuð þeim sem fylgja venjulegri flensu.
View this post on InstagramA post shared by EDward O'Brien (@eobofficial) on Mar 23, 2020 at 11:16am PDT
Gítarleikarinn og bakraddasöngvarinn segist þó vera á batavegi og vera í einangrun. O'Brian hóf nýlega sólóferil sinn undir nafninu EOB og fyrsta breiðskífan hans Earth er væntanleg í apríl.