Tónlistarmaðurinn Aaron Carter og kærasta hans Melenie Martin fóru að rífast á sunnudaginn með þeim afleiðingum að Martin var handtekin fyrir heimilisofbeldi. Carter sem lét húðflúra á sig nafn Martin fyrir nokkrum vikum er komin með nóg af Martin.
Lögreglumenn voru kallaðir til á heimili Carter á sunnudaginn að því fram kemur á vef TMZ. Ástæða þess að lögreglan kom var heimilisofbeldi en rifrildi á milli þeirra þróaðist yfir í líkamlegt ofbeldi. Carter segir í samtali við TMZ að Martin hafi tjáð honum að hún væri ólétt. Hann trúir henni hins vegar ekki og telur hana ljúga. Lögregla segir Carter með sýnilega áverka á líkama sínum.
Þrátt fyrir húðflúrið ætlar tónlistarmaðurinn ekki að byrja með Martin aftur. Hann hefur meðal annars tjáð sig um ofbeldið á Twitter. Þar segir hann að enginn eigi það skilið að að verða fyrir ofbeldi oft. Eitt skipti sé nóg. Segir hann einnig að hann voni að Martin fái þá hjálp sem hún þurfi. Enginn eigi skilið að verða fyrir ofbeldi hvorki konur né menn.
you don't have to wait for someone to treat you bad repeatedly. All it takes is once, and if they get away with it that once, if they know they can treat you like that, then it sets the pattern for the future.”
— Aaroncarter (@aaroncarter) March 30, 2020
so sad, ;( I hope she gets the help she needs. no one deserves domestic abuse female OR MALE #DomesticAbuse #Cheater she literally chocked me out.... i'm devastated https://t.co/Zaxo7zgPbt
— Aaroncarter (@aaroncarter) March 30, 2020