Söngvarinn Bill Withers er látinn, 81 árs að aldri. Að sögn fjölskyldu Withers hafði hann glímt við hjartasjúkdóma um nokkurt skeið þegar hann lést í Los Angeles síðastliðinn mánudag.
Withers er einna þekktastur fyrir lögin Ain't No Sunshine og Lean On Me, auk þess sem hann samdi slagara á borð við Just The Two Of Us, Lovely Day og Use Me.
Í yfirlýsingu frá fjölskyldu Withers vegna andlátsins segir að hann hafi talað við fólk af hreinskilni og leitast við að skapa tengsl milli þess.