Dramatískur Laddi

Laddi við tökur á Jarðarförinni minni.
Laddi við tökur á Jarðarförinni minni. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Jarðarförin mín nefnist ný sex þátta röð sem verður aðgengileg í heild sinni í Sjónvarpi Símans um páskana, frá og með skírdegi. Í henni fer Þórhallur Sigurðsson, Laddi, með hlutverk Benedikts sem fær þær fréttir, skömmu eftir að hann lætur af störfum vegna aldurs, að hann sé með heilaæxli sem litlar líkur eru á að hægt sé að fjarlægja. Benedikt á því skammt eftir ólifað og fer að undirbúa eigin jarðarför, án þess að láta sína nánustu vita.

Hugmyndina að þáttunum átti Jón Gunnar Geirdal og skrifaði hann handrit þeirra með Ragnari Eyþórssyni, Heklu Elísabetu, Sólmundi Hólm og Baldvini Z.

Þættirnir eru dramatískir, á köflum tragíkómískir og virðist heldur skrítið að fá einn ástsælasta gamanleikara og grínista þjóðarinnar í aðalhlutverkið. Og þó. Ladda er margt til lista lagt.

Leikararnir Einar Gunn og Laddi með leikstjóranum Kristófer Dignus.
Leikararnir Einar Gunn og Laddi með leikstjóranum Kristófer Dignus. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Vildi meiri dramatík

„Þetta er svolítið mikið drama og það er eiginlega það sem gerði mig fyrst spenntan fyrir verkefninu,“ segir leikstjóri þáttanna, Kristófer Dignus. Jón Gunnar hafi strax haft Ladda í huga þegar hann fékk hugmyndina fyrir um níu árum. „Verkefnið var í fyrstu meira grín og farsi en hefur þroskast og þróast í gegnum árin. Þegar það kom til mín sagði ég við Jón að ég myndi taka það að mér að því gefnu að ég fengi að gera það að meira drama en gríni, fengi að nýta leikhæfileika Þórhalls.“

Kristófer segir að sér hafi þótt meira spennandi að sjá Ladda leika dramatískt hlutverk frekar en gamanhlutverk eins og hann er vanur. „Ef þú ert góður gamanleikari og hæfileikaríkur hefurðu það sem þarf til að vera dramatískur leikari líka. Ég held að þetta virki í þessa átt; að gamanleikari geti tekið að sér dramahlutverk en ég held að það sé erfiðara í hina áttina.“

– Þú vissir að Laddi myndi standa sig vel í dramatísku hlutverki?

„Já, hann var frábær,“ svarar Kristófer og bendir á að fyrir fjölmörgum árum hafi Laddi leikið í sjónvarpsmynd eftir Hrafn Gunnlaugsson. „Fólk var í nettu sjokki þá því Laddi var á hátindi grínferilsins,“ segir Kristófer og hlær.

Bitastætt hlutverk

„Þetta er bitastætt hlutverk, flottur karakter að vinna með og sagan er áhugaverð. Ég held að þetta hafi líka komið á réttum tíma fyrir Ladda, hann er alltaf alveg við það að setjast í helgan stein en ég held hann geti það ekki því hann þekkir ekki annað en að vinna og á líka svo mikið eftir, finnst mér,“ segir Kristófer en hann hefur einkum leikstýrt gamanþáttum og auglýsingum og segist gjarnan vilja fikra sig yfir í annars konar efni og dramatískara. „Þegar maður þroskast og eldist finnst manni það meiri áskorun líka. Ég hef verið að gera meira léttmeti í gegnum tíðina og þegar ég fékk þessa djúsí sögu þar sem verið er að díla við háalvarlega hluti, dauðann og þess háttar, gat ég ekki skorast undan,“ segir Kristófe,sem undirbýr nú gerð sinnar fyrstu kvikmyndar, þrillers sem gerist uppi á hálendi Íslands.

– Það er ekki algjör tilviljun að þættirnir eru frumsýndir á páskunum, í þeim er yfirvofandi dauði og kannski einhvers konar upprisa líka?

„Það er skírskotun í trúna í þessu, upprisuna og dauðann og það er hentugt að þetta sé um páskana. Mér finnst páskarnir líka leiðinlegasti tími ársins á Íslandi og fínt að geta sýnt fólki þetta í sjónvarpinu, ég tala nú ekki um þegar allir eru í sóttkví heima,“ segir Kristófer.

Kristófer fylgist með töku af skjá.
Kristófer fylgist með töku af skjá. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Vill gjarnan blanda saman drama og kómedíu

Laddi staðfestir að hann hafi leikið dramatískt hlutverk í sjónvarpsmynd árið 1977 eða '78 sem sýnd var í ríkissjónvarpinu og nefnist Hver er sinnar gæfu smiður. „Þar lék ég misheppnaðan tónlistarmann sem var sendur út á land í afvötnun af fjölskyldu eiginkonu sinnar, að kenna í heimavistarskóla en það fór náttúrlega allt í tóma vitleysu. Það var svolítið drama í því,“ rifjar hann upp.

En hefur hann eitthvað reynt fyrir sér í drama fyrir utan þessa mynd? „Nei, nei, mér hefur ekki boðist það fyrr en núna,“ svarar Laddi en grínhlutverkin sem hann hefur tekið að sér eru mýmörg.

– Er þetta eitthvað sem þig hefur alltaf langað að gera meira af?

„Já, já, mann langar að blanda þessu saman, kómedíu og smá drama eða bara svona venjulegu, ekki beint drama, ég hef engan áhuga á að leika Shakespeare,“ segir Laddi kíminn. Hann segir Jón Gunnar hafa boðið sér hlutverkið fyrir um tíu árum en þá hafi þættirnir átt að vera gamanþættir. „Síðan hefur þetta breyst og snerist yfir í meira drama sem mér fannst skemmtilegt. Þótt handritið hafi verið skemmtilegt áður var allt annað að fá þetta í hendurnar, ég var mjög sáttur við það og ánægður með þetta handrit, himinlifandi að fá tækifæri til að taka þátt í þessu.“

Bitur maður

– Þessi maður er býsna sérstakur þegar litið er til annarra persóna sem þú hefur leikið, hann virðist við fyrstu sýn vera dálítill leiðindapúki. Eða hvernig myndir þú lýsa honum?

„Hann er mjög bitur maður og lokar á tilfinningar sínar. Hann hefur lifað innihaldslausu lífi í hartnær þrjátíu ár út af áfalli sem hann varð fyrir. Þegar hann fær þær fréttir að hann eigi stutt eftir ólifað brýst hann út úr skelinni og fer að gera eitthvað drastískt sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Hann fer að gera eitthvað fyrir sjálfan sig á síðustu metrunum, fer að skipuleggja sína eigin jarðarför og er viðstaddur hana sjálfur af því hann langar að vita hvernig þetta fer og hverjir mæta,“ svarar Laddi.

– Hvernig undirbjóstu þig fyrir þetta hlutverk? Bjóstu til karakter?

„Ég reyndi bara að ná hans hugsunum og var kannski mikið ég sjálfur en samt með hans viðhorf og hugsanir. Hann þótti ekki skemmtilegur maður, frekar þurr á manninn, einhver fjármálastjóri sem átti enga vini nema einn sem fór með honum í golf og gat þolað hann,“ segir Laddi og hlær við, „en ég náði tengingu við hann.“

Laddi í söngleiknum We Will Rock You í Háskólabíói í …
Laddi í söngleiknum We Will Rock You í Háskólabíói í fyrra.

Inni í skel

– Eruð þið Benedikt á einhvern hátt líkir?

„Nei, ekki beint, en hann lokaði sig náttúrlega af í sinni skel og ég var svolítið svoleiðis í gamla daga. Út af feimni fannst mér oft gott að vera einn, dró mig svolítið inn í mína skel, má segja, en sprakk svo aftur út úr henni seinna þegar ég fór að skemmta og var kominn í grínið.“

Laddi er spurður hvernig hann myndi skipuleggja eigin jarðarför. Velti hann því ekki fyrir sér þegar hann var í þessu hlutverki? Jú, hann segist hafa gert það. „Þetta var svolítið einkennileg tilfinning, að leggjast ofan í kistu og máta þannig að mér leið ekki vel og ég fór að hugsa þetta, velta fyrir mér hvort ég þyrfti ekki að fara að skipuleggja þetta. Þetta verður svo stór jarðarför hjá mér, þetta verður fjöldagröf!“ segir Laddi og vísar þar til þeirra fjölda persóna sem hann hefur skapað; Skúla rafvirkja, Eiríks Fjalars, Þórðar húsvarðar og allra hinna furðufuglanna.

Laddi mælir fyrir pútti. Hann er illa haldinn af golfveirunni.
Laddi mælir fyrir pútti. Hann er illa haldinn af golfveirunni. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Einbeittur í biðinni

– Hvað reyndi mest á þig í þessu hlutverki?

„Það var nú kannski biðin, eins og í öllum tökum. Og ég var líka í hverju einasta atriði, var alltaf í tökum og það var svolítið álag og mikill texti að læra þannig að ég þurfti að vera vel undirbúinn,“ svarar Laddi. Í biðinni hafi hann reynt að fara afsíðis og vera í eigin heimi, hugsa um Benedikt og passa sig að detta ekki úr karakter.

– Það þarf að halda einbeitingu í biðinni í þessu líkt og golfinu.

„Nákvæmlega, eins og í golfinu, þú mátt ekki missa einbeitinguna,“ svarar Laddi en hann er mikill ástríðugolfari. „Golfsjúklingur, má segja, það eru tvær bakteríur í gangi; kórónuveiran og golfveiran,“ segir Laddi um áhuga sinn á íþróttinni og bætir við að hann hafi verið í landsliði öldunga í golfi í nokkur ár. Nú komist landsliðið ekki á golfmót erlendis í sumar, því miður, út af farsóttinni. Laddi segist þó reyna að halda sér við með því að fara í golfhermi.

– Þú ert sumsé orðinn öldungur en það er alltaf jafnmikil eftirspurn eftir þér. Þú ert til að mynda ennþá að tala inn á teiknimyndir og leika.

„Jú, jú, það er fast hjá mér einu sinni í viku að tala inn á teiknimyndir og það er nóg að gera nema náttúrlega núna þegar búið er að fella niður fullt af skemmtunum. Maður er í árshátíðum, veislustjórn og slíku ennþá,“ svarar Laddi.

Málverk eftir Ladda.
Málverk eftir Ladda. mbl.is/Árni Sæberg

Gleymir sér við listmálun

– Hvað ertu annars að gera á þessum undarlegu tímum samkomubanns og farsóttar?

„Það er náttúrlega sem minnst, ég er að lesa inn einu sinni í viku og svo er ég að dunda mér við að mála,“ svarar Laddi og á þar við listmálun. Er það nýtilkomin ástríða, myndlistin? Nei, Laddi segist hafa teiknað frá barnsaldri og hafa sem ungur maður ætlað að verða bæði myndlistar- og tónlistarmaður. Hann hafi bara aldrei mátt vera að því og því ákveðið að bíða fram í ellina með listmálunina. „Og nú er ég bara að byrja að mála,“ segir Laddi, léttur í bragði. „Nú er ég kominn með þann þroska að geta farið að mála þessar teikningar mínar og þetta er yndislegt. Þarna er ég bara einn með sjálfum mér og maður gleymir veirunni og öllu þegar maður er að mála. Það er alveg stórkostlegt.“

Hér má sjá stiklu fyrir þættina:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson