Stelpurnar í Evrópumeistaraliði Gerplu frá 2010 horfðu á æfingu hjá andstæðingum sínum og tóku svo ákvörðun um að vinna Evrópumótið í kjölfarið. Ekki bara vinna mótið, heldur rústa því. Vera liðið sem er í besta líkamlega forminu, sætta sig við ekkert annað en sigur.
Gerplu hóputinn er næsta umfjöllunarefni í Áskorun en þátturinn er í umsjón Gunnlaugs Jónssonar, knattspyrnu- og dagskrárgerðarmanns. Í þáttunum fá áhorfendur að kynnast viðmælendum í sínu náttúrulega umhverfi og fá að sjá hliðar sem fáir ef nokkrir þekkja, að baki sögum sem flestir hafa heyrt; kynnast manneskjunni undir búningnum. Rætt er við samstarfsfólk, fjölskyldu og vini og kafað undir yfirborðið í sögu hvers og eins.
Ný þáttur af Áskorun kemur á fimmtudaginn í Sjónvarp Símans Premium og verður sýndur í opinni dagskrá sama dag klukkan 21.00 í Sjónvarpi Símans.