Ungi kærastinn fullkominn sóttkvíarfélagi

Kate Beckinsale segir nýja kærastann hinn fullkomna sóttkvíar félaga.
Kate Beckinsale segir nýja kærastann hinn fullkomna sóttkvíar félaga. AFP

Leikkonan Kate Beckinsale er í góðum málum með nýja kærastanum sínum, Goody Grace, og hefur notið þess að eyða síðustu vikum heima með honum. 

„Þau eru enn í sóttkví saman heima hjá henni. Kate nýtur þess að eyða tíma með honum. Henni finnst hann mjög þroskaður, klár og skapandi. Hann skemmtir henni með tónlist, þau elda saman og horfa á kvikmyndir. Henni finnst hann vera hinn fullkomni sóttkvíarfélagi,“ sagði heimildarmaður People um samband þeirra Beckinsale og Goody Grace. 

Grace er 22 ára gamall eða 24 árum yngri en Beckinsale sem er 46 ára.

Beckinsale og Grace sáust fyrst saman snemma í apríl mánuði í göngutúr í Los Angeels en þá var staðfest að þau hefðu verið í sambandi í nokkra mánuði. 

„Þau eru búin að fara á stefnumót síðan í byrjun árs. Þau skemmta sér saman og Kate virðist hamingjusöm. Aldur hans er ekki vandamál. Það er bara tala,“ sagði heimildarmaðurinn þá.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant