Fór heim úr meðferð eftir aðeins nokkra daga

Scott Disick fór í meðferð í síðustu viku en er …
Scott Disick fór í meðferð í síðustu viku en er nú kominn heim. AFP

Raunveruleikastjarnan Scott Disick fór í meðferð í síðustu viku. Hann var ekki fyrr kominn í meðferðina en hann ákvað að fara heim. Lögmaður Disicks heldur því fram að meðferðarstofnunin hafi brotið trúnað þar sem mynd af Disick á zoomfundi í meðferðinni var lekið á netið. 

Í bréfi til erlendra miðla á borð við E! segir lögmaðurinn að Disick hafi ákveðið að fara heim eftir þetta trúnaðarbrot auk þess sem búast má við að hann fari með málið lengra. Lögmaðurinn segir einnig að Disick hafi ekki farið í meðferðina vegna fíknivanda heldur hafi hann ákveðið að fara í meðferð í síðustu viku til þess að takast á við fráfall foreldra sinna sem dóu fyrir nokkrum árum. Ástæðan var því ekki áfengis- eða kókaínneysla. 

Disick, sem á börn með Kourtney Kardashian, kemur fram í raunveruleikaþættinum Keeping Up With the Kardashians. Hann er þekktur fyrir að vera ólátabelgur og fyrir fíknivanda sinn. Hann hefur áður farið í meðferðir og um leið og það fréttist í gær að Disick væri kominn í meðferð voru fréttir fluttar af því að hann væri í meðferð vegna fíknivanda eins og svo oft áður.

Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin.
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson