„Vil hugsa út fyrir kassann“

Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar vill skoða hlutina ferskum augum …
Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar vill skoða hlutina ferskum augum og hafa nýsköpun að leiðarljósi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta var mjög tvísýnt því atkvæðin dreifðust mjög jafnt og fáum atkvæðum munaði á efstu tveimur verkum,“ segir Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar (LA), en í gær varð ljóst að Benedikt búálfur eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson vann í opinni netkosningu sem LA stóð fyrir þar sem almenningi gafst kostur á að velja hvaða barnaleikrit sett yrði á svið í Samkomuhúsinu í febrúar 2021 í leikstjórn Völu Fannell.

Vala Fannell mun leikstýra uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Benedikt búálfi …
Vala Fannell mun leikstýra uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Benedikt búálfi á næsta leikári.

„Það má segja að við höfum verið með plan A, B og C til þess að niðurstaðan kæmi okkur ekki að óvörum. Við vorum þannig auðvitað búin að tryggja okkur sýningarréttinn á öllum þremur verkum, gera fjárhagsáætlun fyrir þau öll, fara í grunnhugmyndavinnu og við Vala búnar að velta vöngum yfir hvaða leikara gaman væri að fá í hlutverk,“ segir Marta og tekur fram að þegar hafi verið ákveðið að Móglí, leikgerð Illuga Jökulssonar á bókinni Skógarlíf eftir Rudyard Kipling, sem fékk næstflest atkvæði, verði barnasýning LA vorið 2022.

Lærdómsríkt ferli

„Það er mjög sterk saga sem spennandi verður að segja,“ segir Marta og bendir á að öll þrjú verkin hafi verið mjög sterk, en þriðja verkið var Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. „Öll verkin þrjú eiga sér mjög tryggan aðdáendahóp,“ segir Marta og bendir á að tónlistin við Benedikt búálf sé þekkt og í uppáhaldi hjá mörgum. 

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar samdi tónlistina við Benedikt …
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar samdi tónlistina við Benedikt búálf.

„Það vill svo skemmtilega til að Þorvaldur Bjarni samdi tónlistina og Andrea Gylfa söngtextana. Það er því ljóst að við munum fara í samstarf við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands við uppsetninguna,“ segir Marta, en Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk).

Marta segir kosningar opnar almenningi sem leið til að velja leikverk til uppsetningar spennandi. „Þetta var mjög lærdómsríkt ferli og við verðum því reynslunni ríkari næst þegar við efnum til slíkra kosninga,“ segir Marta og tekur fram að hún hafi mjög gaman af því að hugsa út fyrir boxið.

Hlutdeild í leikhúsinu

„Við erum vön því kerfi í leikhúsinu að þar ráði leikhússtjórinn alltaf öllu í reynd. Það eru hins vegar alls kyns leiðir til að stjórna stofnun eða fyrirtæki og strúktúrinn getur verið mjög misflatur,“ segir Marta og bendir á að bæði ríki og borg séu í auknum mæli að átta sig á mikilvægi valddreifingar. „Markmið okkar er að fólk eignist hlutdeild í leikhúsinu og upplifi að það sé hlustað á það og að rödd þess skipti máli. Það er mjög lærdómsríkt fyrir mig sem stjórnanda að setja ferli á borð við þetta af stað og sýna það æðruleysi að treysta útkomunni,“ segir Marta, sem hefur sem leikhússtjóri ekki farið varhluta af samkomubanninu þar sem hætta þurfti snögglega sýningum á söngleiknum Vorið vaknar.

Vegna samkomubannsins þurfti í miðju kafi að hætta sýningum á …
Vegna samkomubannsins þurfti í miðju kafi að hætta sýningum á söngleiknum Vorið vaknar. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

„Við erum ekki með fastráðna leikara og því höfum við ekki tekið þátt í streymi. Í staðinn höfum við nýtt tímann til að undirbúa næsta leikár,“ segir Marta og tekur fram að margt spennandi sé í pípunum. „Við vitum hins vegar ekkert frekar en önnur leikhús hvernig haustið lítur út eftir að tilkynnt var að tveggja metra reglan gilti út árið.“

Kallast á við samtímann

Að sögn Mörtu fer LA í samstarf við Steinunni Knútsdóttur og Grétu Kristínu Ómarsdóttur um þátttökuleikhúsverkefni sem nefnist Eyja og sýnt verður í Hrísey á Akureyrarvöku í lok ágúst og á A! gjörningahátíð á Akureyri í október, en verkið verður unnið í samstarfi við íbúa Hríseyjar.

Fyrsta frumsýning haustsins verður, að sögn Mörtu, unnin í samstarfi við Hælið – setur um sögu berklanna sem er í Kristnesi og rekið undir stjórn Maríu Pálsdóttur. „Sýningin verður frumsýnd í Hælinu í september. Þar er um að ræða „site-specific“ þátttökusýningu þar sem áhorfendur verða leiddir um húsnæðið og því takmarkaður áhorfendafjöldi og auðvelt að virða tveggja metra regluna,“ segir Marta. Leikstjóri er Vala Ómarsdóttir og handritið skrifar Vilhjálmur B. Bragason, sem titlar sig Vandræðaskáld. „Leikritið verður unnið upp úr heimildum, m.a. bréfum sjúklinga sem dvöldu á hælinu. Það hefur verið draumur Maríu að gera þessa sýningu síðan Hælið var opnað og því var vinnan löngu komin af stað áður en kórónuveirufaraldurinn braust út. Þetta er bæði áhrifamikið og áhugavert umfjöllunarefni sem kallast sterklega á við samtímann.“

Kjörið tækifæri til að hugsa hlutina upp á nýtt

Vorið 2021 mun Marta í annað sinn leikstýra útskriftarsýningu nemenda af leikarabraut frá Listaháskóla Íslands, en vorið 2019 leikstýrði hún Mutter Courage eftir Bertolt Brecht við góðar viðtökur. „Um er að ræða samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar, Listaháskólans og Þjóðleikhússins sem sýnt verður bæði á Akureyri og í Reykjavík,“ segir Marta og tekur fram að um afar spennandi verk sé að ræða. „Ég get að svo stöddu því miður ekki ljóstrað upp hvaða verk þetta er en get þó sagt að um nýtt erlent verk er að ræða sem er mjög spennandi og talar beint inn í samtíma okkar og samfélag,“ segir Marta.

Marta Nordal leikstýrði uppfærslu útskriftarnema af leikarabraut Listaháskóla Íslands á …
Marta Nordal leikstýrði uppfærslu útskriftarnema af leikarabraut Listaháskóla Íslands á Mutter Courage eftir Bertolt Brecht vorið 2019 við góðar viðtökur. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Segir hún yfirstandandi óvissutíma hvatningu til að hugsa hlutina upp á nýtt. „Ástandið núna hvetur okkur til að hugsa hlutina upp á nýtt. Við erum að lifa hluti sem maður sá aldrei fyrir sér að gætu gerst og samt heldur samfélagið áfram. Það er hins vegar ekkert sem segir að gera þurfi hlutina eins og þeir hafa alltaf verið gerðir. Mér finnst áhugavert að skoða hluti í nýju ljósi,“ segir Marta og tekur fram að sér finnist mikilvægt að LA marki sér sérstöðu. „Við eigum ekki að elta það sem aðrir eru að gera heldur hafa nýsköpun að leiðarljósi og skoða hlutina ferskum augum. Ég vil hugsa út fyrir kassann og nýta í því skyni smæð okkar og frelsi í stað þess að vera lokuð inni í einhverju fyrir fram mótuðu kerfi. Það er vegarnestið sem ég fer með inn í næsta leikár,“ segir Marta að lokum.

Viðtalið við Mörtu birtist fyrst í Morgunblaðinu fimmtudaginn 7. maí. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson