Ferrell á RÚV í kvöld

Will Ferrell verður í Eurovision-stuði í kvöld.
Will Ferrell verður í Eurovision-stuði í kvöld. CHRIS RATCLIFFE

Bandaríski leikarinn Will Ferrell mun koma fram í sjónvarpsþættinum Eurovisiongleði - Okkar 12 stig sem sýndur verður í beinni útsendingu á RÚV í kvöld kl. 19:40. 

Ferrell er mikill Íslandsvinur en eins og kunnugt er dvaldi hann hér á landi við tökur á Hollywood-myndinni Eurovision þar sem leikarinn leikur Íslendinginn Lars sem keppir í Eurovision-söngvakeppninni fyrir Íslands hönd.

„Það er mikill heiður fyrir okkur að þessi heimsfrægi leikari gefi sér tíma til að taka þátt í þessu með okkur,“ segir Rúnar Freyr Gíslason verkefnastjóri hjá RÚV. „Honum þykir greinilega mjög vænt um Ísland og Íslendinga og naut þess að vera hérna. Hann sló alla vega strax til þegar við höfðum samband við hann í gegnum Netflix.“

Rúnar Freyr segist ekki vilja gefa nánar upp hvaða hlutverki Ferrell muni gegna í þættinum í kvöld. „Ég hvet bara alla til að horfa, þetta verður æðislegt. Þrátt fyrir að engin verði Eurovision-keppnin í ár, þá hvetjum við alla til að koma sér í gírinn fyrir kvöldið með snakkið og ídýfuna og kjósa sitt uppáhaldslag.“

Í þættinum Okkar 12 stig munu Íslendingar kjósa í símakosningu hvaða lag hefði fengið 12 stig frá okkur, hefði keppnin farið fram. Rúnar Freyr lofar mikilli skemmtun. „Jón Jónsson og Ragnhildur Steinunn verða kynnar en svo koma fjölmargir aðrir fram. Það verður auðvitað kosið á milli 15 bestu laganna, Daði Freyr verður með geggjað atriði, Klemens Hatari sýnir á sér nýja hlið, ríkisstjórnin, forsetahjónin og fleiri koma við sögu og svo auðvitað Will Ferrell.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant