Tónleikarnir með Damon Albarn í Hörpu sem áttu að fara fram 12. júní hafa nú verið færðir til 28. mars 2021
Damon Albarn átti að fara í tónleikaferðalag í sumar þar sem hann ætlaði að flytja nýja verkið sitt The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows, sem innblásið er af íslenskri náttúru. Tónleikaferðalagið er með viðkomu í Reykjavík sem hluti af Listahátíð Reykjavíkur en í dag tilkynnti hann nýjar dagsetningar fyrir ellefu tónleika af fimmtán, þar á meðal tónleikana í Reykjavík.
Miðar sem þegar hafa verið keyptir gilda sjálfkrafa áfram á tónleikana 28. mars 2021. Ef þessi nýja dagsetning hentar ekki miðahöfum geta þeir farið fram á endurgreiðslu með því að senda tölvupóst á midasala@harpa.is fyrir 3. júní.