Gáfust ekki upp þrátt fyrir framhjáhald

Kevin Hart.
Kevin Hart. AFP

Bandaríski grínistinn Kevin Hart opnaði sig um hvernig eiginkona hans, Eniko, gafst ekki upp á honum eftir framhjáhald árið 2017. Í hlaðvarpsþættinum The School of Greatness segir Hart að það hafi ekki verið auðvelt að byggja upp traustið aftur að því er fram kemur á vef ET. 

Hart segir að eiginkona hans hafi komist að þeirri ótrúlegu niðurstöðu að reyna að laga hjónabandið í ljósi þess að þau áttu barn saman. „Þú skuldar mér að verða betri,“ sagði Eniko við eiginmann sinn. 

Eniko gerði Hart grein fyrir því að hann bæri ábyrgð á gjörðum sínum. Hart sagði jafnframt að það hefði ekki verið auðvelt að komast yfir framhjáhaldið. Hart þakkar eiginkonu sinni að hafa tekið þá afstöðu að láta ekki annað fólk hafa áhrif á heimilislíf sitt. 

Árið 2017 komst upp um framhjáhald Harts en hann hélt fram hjá eiginkonu sinni þegar hún var komin átta mánuði á leið með þeirra fyrsta barn. Sama ár sendi hann frá sér opinbera afsökunarbeiðni á samfélagsmiðlum til eiginkonu og barna. Hjónin eiga nú von á sínu öðru barni en fyrir átti Hart tvö börn. 




mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant