Nýjasta æðið á samfélagsmiðlum er að vekja máls á því hvað gen fólks geta verið mögnuð. Stundum er það augljóst en stundum ekki. Það getur verið gaman að bera saman myndir af fólki við ljósmyndir af ömmu eða afa á sama tíma.
Shelby Contra sem er 23 ára sem dæmi telur gen ömmu sinnar vera afrituð í hana. Færsla hennar á Twitter fór á flug og voru ríflega 500 þúsund manns sem líkuðu við hana. Yfir þúsund manns deildu sínum upplifunum af þessu, ljósmyndum af sér með ömmu og afa og svo mætti lengi áfram telja.
Sjón er sögu ríkari.
My mom on her wedding day, me at junior prom! I love looking just like my hero ❤️ pic.twitter.com/aAQU9HZmhm
— Olivia Moe (@obliviuh) May 24, 2020