Rauðskeggurinn sem sló í gegn

Hinn norski Kristofer Hivju hefur marga hildina háð á leiklistarferli …
Hinn norski Kristofer Hivju hefur marga hildina háð á leiklistarferli sínum og slær nú í gegn í Twin. Ljósmynd/NRK TV

Norðmaðurinn rauðskeggjaði, Kristofer Hivju, hefur vakið heimsathygli fyrir túlkun sína á tvíburunum Erik og Adam í norsku spennuþáttunum Tvíburi eða Twin sem sýndir hafa verið í tugum landa. Hivju leikur eineggja tvíbura sem eru býsna ólíkir í öllu nema útliti, á meðan Adam er ábyrgðarfullur fjölskyldumaður með eigið fyrirtæki er bróðir hans einn af kantmönnum lífsins, býr í hjólhýsi við ströndina í Lofoten í Norður-Noregi og hefur býsna ólíkan lífsstíl miðað við hvað bróðir hans hefur tamið sér.

Jötnabani í Game of Thrones

Hivju er aðdáendum Game of Thrones-þáttanna einnig að góðu kunnur þar sem hann lék manninn með hið eftirminnilega nafn Tormund Giantsbane í þriðju til áttundu röð þáttanna. Hann hefur þó komið mun víðar við í heimi leiklistarinnar og á að baki fjölda kvikmynda og þátta.

Kristofer Hivju er rétt rúmlega fertugur, fæddur 7. desember 1978 í Ósló þar sem hann ólst upp á Ekeberg, austan til í höfuðborginni. Leiklistin heillaði snemma og Hivju lauk stúdentsprófi af leiklistarbraut Hartvig Nissens-framhaldsskólans. Þaðan lá leiðin í leiklistarnám í Det statlige russiske akademi for teaterkunst, elsta leiklistarskóla Rússlands, sem stofnaður var árið 1878, en Hivju lagði þó ekki leið sína til austurveldsins heldur nam við útibú skólans í Árósum í Danmörku.

Hivju neyddist til að fresta tökum er hann sýktist af …
Hivju neyddist til að fresta tökum er hann sýktist af kórónuveiru.

Sníkjudýr af öðrum heimi

Árið 2008 lék hann í kvikmyndinni Rovdyr og fylgdi fjöldi annarra í kjölfarið, svo sem Olav, kvikmynd leikstjórans M. Night Shyamalan, After Earth, og árið 2011 í kvikmyndinni The Thing, þar sem sett var upp forspil að kvikmynd Johns Carpenters með sama nafni frá árinu 1982, sem fjallar um sníkjudýr af öðrum heimi sem leggst á hóp vísindamanna í rannsóknarstöð á Suðurskautslandinu og tekur gervi þeirra, eins af öðrum.

Fékk kórónuveiruna

Myndinni frá 2011 leikstýrði hinn hollenski Matthijs van Heijningen Jr. og blandaði þar saman norskum og bandarískum leikurum þar sem sögusviðið var norsk rannsóknarstöð. Í nokkrum senum ræddu því Hivju og fleiri norskir leikarar saman á sínu móðurmáli þótt annað væri enska.

Hivju fór ekki varhluta af kórónuveirunni sem breytt hefur svo mörgum áætlunum heimsbyggðarinnar það sem af er árinu 2020. Um miðjan mars tilkynnti leikarinn að hann væri smitaður af veirunni. Þar með fór öll fjölskyldan í heimasóttkví og ýmislegt breyttist. Til stóð að hefja tökur á annarri röð Netflix-þáttanna The Witcher þar sem Hivju leikur persónuna Nivellen og var því slegið á frest meðan á sóttkví stóð.

Lenti í svikahröppum

„Við fjölskyldan verðum heima þann tíma sem þetta mun taka,“ skrifaði Hivju á Instagram-síðu sína en eiginkona hans er blaðamaðurinn, leikstjórinn og handritshöfundurinn Gry Molvær og eiga þau táningsdæturnar Noor og Sylju.

Í mars misnotuðu svikahrappar nafn og persónu Hivju og reyndar fleiri þekktra Norðmanna, þar á meðal hótelkóngsins Olavs Thon, Mortens Harket úr hljómsveitinni A-ha og fleiri til að ginna fólk út í fjárfestingar í ýmsum rafmyntum. Var þar sett upp stórt og mikið viðtal við Hivju, allt falsað frá grunni, þar sem hann ræddi í löngu máli hvernig hann hefði stórauðgast.

Sögur af ótrúlegum gróða

Viðtalið var á lýtalausri norsku og látið líta svo út að það kæmi frá norska ríkisútvarpinu NRK sem það gerði þó ekki og sást þegar farið var að rýna í vefslóðina. Var þar meðal annars sagt frá því hvernig starfsmaður NRK ákvað að reyna þessa undrafjárfestingu og hóf leikinn með lítilli upphæð sem svo gerði ekkert annað en að vaxa næstu dagana.

Norskir fjölmiðlar, þar á meðal rannsóknarvefmiðillinn Faktisk, birtu fljótlega í kjölfarið frásagnir um að allt saman væri tóm tjara sem dreift væri um Facebook-síðuna FortLock og þar beitt þeirri þekktu aðferð að framleiða efni sem liti út fyrir að eiga rætur sínar hjá trúverðugum fjölmiðlum þegar sannleikurinn væri öllu dekkri.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 11. júní. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson