Beyoncé berst fyrir Breonnu Taylor

Beyoncé Knowles berst fyrir Breonnu Taylor.
Beyoncé Knowles berst fyrir Breonnu Taylor. AFP

Tónlistarkonan Beyoncé Knowles hvetur Daniel Cameron, ríkissaksóknara Kentucky-ríkis í Bandaríkjunum, til þess að leggja fram ákæru á hendur þremur lögreglumönnum sem komu að morðinu á Breonnu Taylor. 

Taylor, 26 ára bráðaliði, var skotin átta sinnum á heimili sínu í Louisville 13. mars síðastliðinn, hún lést í kjölfarið. Hún var sofandi þegar lögreglan fór inn á heimili hennar. Lögregla hafði þá skipulagt húsleit sem hluta af stærri fíkniefnarannsókn. Heimildin sem lögreglan hafði til þess er svokölluð „no-nock warrant“ þar sem lögreglan hefur heimild til að fara inn á heimili fólks án þess að banka. 

Á heimili Taylor var maki hennar sem lögreglan taldi vera blandaðan inn í fíkniefnamálið sem hún rannsakaði. Engin fíkniefni fundust á heimilinu. 

Lögreglumennirnir þrír sem tóku þátt í aðgerðinni, þeir Jon Mattingly, Myles Cosgrove og Brett Hankinson, voru settir í leyfi en hafa ekki verið handteknir eða ákærðir fyrir morðið á Taylor.

„Þrír mánuðir eru liðnir, og fjölskylda Breonnu Taylor bíður enn eftir réttlæti fyrir hana,“ skrifaði Knowles í bréfi sínu sem hún deildi á vefsíðu sinni í gær. Athygli hefur verið vakin á máli Taylor eftir morðið á George Floyd í Minneapolis í lok maí. 

Morðið á Taylor hefur þó haft áhrif á löggjöf í Louisville, en á fimmtudaginn í síðustu viku samþykkti borgarráðið að banna heimildir lögreglu til húsleitar án þess að banka. 

Knowles sagði í bréfi sínu að breytingarnar væru lítið skref í rétta átt en minntu sárlega á að réttlæti hefur ekki fengist fyrir Breonnu Taylor. Í bréfi sínu gagnrýndi Knowles rannsókn lögreglunnar í Louisville harðlega og sagði hana skapa fleiri spurningar en hún svaraði.

Ríkissaksóknarinn Cameron hefur ekki svarað bréfi Knowles opinberlega en skrifstofa hans sagði á sunnudag að hann vissi af bréfinu. 

Frétt BBC

Breonnu Taylor var minnst á Black Lives Matter-mótmælunum í Los …
Breonnu Taylor var minnst á Black Lives Matter-mótmælunum í Los Angeles í Bandaríkjunum 5. júní en Taylor hefði orðið 27 ára þann dag hefði hún lifað. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant