Harmleikurinn í kringum Glee

Leikarar Glee hafa hlotið sorgleg örlög.
Leikarar Glee hafa hlotið sorgleg örlög. Samsett mynd

Mikið hefur gengið á að undanförnu hjá þeim sem tengst hafa sjónvarpsþáttunum Glee. Hneykslismál og dularfull andlát hafa herjað á leikarana. Margir eru vissir um að á þáttunum hvíli álög. Glee voru vinsælir gamanþættir sem sýndir voru á árunum 2009 til 2015. 

Naya Rivera

Fyrst ber að nefna skelfilegt andlát leikkonunnar Naya Rivera sem drukknaði af slysförum fyrir skemmstu. Lík hennar fannst í Piru vatni í Kaliforníu en þar hafði hún verið að synda ásamt ungum syni sínum. Talið er að hún hafi verið að bjarga syni sínum þegar þau festust í straumi og ekki átt eftir krafta til þess að bjarga sjálfri sér. Rivera var aðeins 33 ára gömul. 

Talið er að Naya Rivera hafi látist við að bjarga …
Talið er að Naya Rivera hafi látist við að bjarga syni sínum. AFP

Cory Monteith

Cory Monteith lést á hótelherbergi í Vancouver 2013. Hann er talinn hafa látist eftir að hafa tekið ofstóran skammt af fíkniefnum. Þá hafa margir aðdáendur þáttanna veitt því athygli að lík Riveru fannst á sama degi og lík Monteith sjö árum fyrr. Monteith var 31 árs.

Cory Monteith fannst látinn á hótelherbergi sínu í Kanada þann …
Cory Monteith fannst látinn á hótelherbergi sínu í Kanada þann 13. júlí 2013.

Mark Salling

Mark Salling svipti sig lífi 2018. Hann hafði hlotið dóm fyrir vörslu barnakláms en komst hjá 20 ára fangelsisvist með því að semja við saksóknara um að afplána fjögur til sjö ár í fangelsi. Þá var hann einnig sakaður um nauðgun. Hann var 35 ára að aldri.

Mark Salling fannst hangandi í tré.
Mark Salling fannst hangandi í tré. mbl

Becca Tobin

Becca Tobin missti unnusta sinn á voveiflegan hátt árið 2014. Matt Bendik var skemmtistaðaeigandi og fannst látinn á hótelherbergi.

Becca Tobin missti unnusta sinn.
Becca Tobin missti unnusta sinn. Skjáskot/Instagram

Lea Michele

Lea Michele hefur mátt þola mikinn mótbyr eftir að upp komst um háttalag hennar bak við tjöldin. Hún er sögð hafa lagt meðleikara sína í einelti, sýnt kynþáttafordóma og almennan dónaskap. Í kjölfar fréttanna hefur hún misst ýmsa samstarfssamninga.

Lea Michele var vond við meðleikara sína.
Lea Michele var vond við meðleikara sína. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler