Segir Kardashian hafa reynt að loka sig inni

Hjónin Kim Kardashian og Kanye West.
Hjónin Kim Kardashian og Kanye West. AFP

Tón­list­armaður­inn og for­setafram­bjóðand­inn Kanye West fór mikinn á Twitter á mánudaginn og sakaði meðal annars eiginkonu sína, raunveruleikastjörnuna Kim Kardashian, um að reyna að loka sig inni. Kardashian er sögð ósátt við hegðun West að undanförnu. 

Erlendir fjölmiðlar á borð við People hafa birt skjáskot af tístum frá West þar sem hann sakar eiginkonu sína um að loka sig inni. Tístunum hefur nú verið eytt. 

„Kim var að reyna fljúga til Wyoming með lækni til þess að láta loka mig inni eins og í myndinni Get Out af því ég grét yfir því að bjarga lífi dóttur minnar í gær,“ tísti West á mánudaginn. Hann tísti því einnig að allir vissu að myndin Get Out væri um hann. 

West beindi einnig orðum sínum að tengdamóður sinni Kris Jenner og kærasta hennar Corey Gamble. Sagði hann að þau mættu ekki hitta börnin sín þar sem þau hefðu reynt að loka sig inni. 

Kardashian sögð brjáluð

Heimildarmaður People segir Kardashian vera brjálaða út í West eftir að West talaði opinberlega um að þau hefðu íhugað þungunarrof þegar Kardashian varð ólétt af sínu fyrsta barni, North West. 

„Kim er í áfalli yfir því að Kanye talaði um North á kosningafundinum,“ sagði heimildarmaður. „Hún er brjáluð yfir því að hann deildi einhverju jafn persónulegu.“

Kardashian og West eiga fjögur börn. Er stjarnan með áhyggjur yfir því að það sem eiginmaður hennar opinberar eigi eftir að hafa áhrif á börn þeirra. „Hún elskar börn sín afskaplega mikið og vill vernda þau,“ sagði heimildarmaðurinn. 

Annar heimildarmaður segir samband þeirra West og Kardashian líða fyrir hegðun West að undanförnu. Segir hann sambandið hafa versnað til muna mjög hratt að undanförnu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson