Leikarinn David Schwimmer hefur komist að loka niðurstöðu í einu eldfimasta rifrildi sjónvarpssögunnar um hvort Rachel Green og Ross Geller hafi verið í pásu eða ekki.
Schwimmer fór með hlutverk Ross Geller í þáttunum Friends sem sýndir voru á áriðunum 1994-2004. Ross og Rachel, sem Jennifer Aniston túlkaði, áttu í eftirminnilegri deilu um það hvort þau hafi verið í pásu þegar Ross svaf hjá annarri konu.
Rachel ásakaði Ross um að hafa haldið fram hjá sér því þau hefðu bara verið í pásu. Ross sagðist hinsvegar ekki hafa haldið fram hjá henni því hann taldi þau vera hætt saman.
Næstum því 20 árum eftir að þessi eftirminnilegi þáttur var sýndur spurði Fallon Schwimmer hvar hann stæði í þessari deilu. „Það er ekki einu sinni spurning. Þau voru í pásu,“ sagði Schwimmer.