Fyrrverandi telur Beckham of óþroskaðan

Brooklyn Beckham og Nicola Peltz eru trúlofuð.
Brooklyn Beckham og Nicola Peltz eru trúlofuð. Skjáskot/Instagram

Lexi Panterra fyrrverandi kærasta Brooklyn Beckham telur hann enn of óþroskaðan til þess að giftast. Hún hefur efasemdir um ráðahaginn og segir Beckham vanann að vera með nýrri stelpu í hverjum mánuði.

Panterra og Beckham voru par en hættu saman á síðasta ári. Hún segir að sambandið hafi ekki þolað mikla fjarveru auk þess sem aldursmunurinn hafi sett strik í reikninginn en Panterra er níu árum eldri en Beckham.

„Þetta var samband sem ég gat í raun aldrei tekið alvarlega. Aldursmunurinn var mikil hindrun. Maður gat séð það strax að hann var frekar óþroskaður. Ég var mjög hissa að frétta að hann hafi trúlofast. Ég átti ekki von á því og í sannleika sagt þá er hann ekki reiðubúinn fyrir slíkt. Hann er mjög ungur og afar óþroskaður,“ segir Panterra í viðtali við The Sun.

Beckham trúlofaðist Nicolu Peltz eftir aðeins níu mánaða samband en hún er dóttir auðkýfingsins Nelson Peltz og hefur hann boðist til þess að borga brúðkaupið.

Lexi Panterra átti í sambandi við Brooklyn Beckham sem olli …
Lexi Panterra átti í sambandi við Brooklyn Beckham sem olli vonbrigðum. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson