Segist hafa reynt að skilja við Kim

Kanye West er afar virkur á Twitter.
Kanye West er afar virkur á Twitter. AFP

Kanye West segir í nýjum twitterskrifum sínum að hann sé búinn að reyna að skilja við Kim Kardashian síðan hún átti fund með rapparanum Meek Mill á Waldorf-hótelinu. Hann segir að hún hafi farið yfir strikið með því að hitta hann og ræða um fangelsis- og betrunarmál.

Þá uppnefnir hann tengdamóður sína Kris Jenner sem Kris Jong-Un og vísar þar til leiðtoga Norður-Kóreu. Auk þess sakar hann þær mæðgur um að vera hvítir kynþáttahyggjumenn og minnist aftur á að þær hafi reynt að svipta hann sjálfræði og loka inni á sjúkrahúsi.

Athygli vekur að tístum hans er jafnóðum eytt en fjöl­miðlar hafa birt skjá­skot af þeim

Heimildarmenn segja Kardashian-fjölskylduna vera áhyggjufulla. Þau séu að reyna að finna bestu leiðina út úr þessari hringiðu. West er hins vegar sagður hafa lokað sig af á búgarði sínum í Wyoming og hleypa engum að sem hann treystir ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler