Sögð hafa íhugað skilnað lengi

Kim Kardashian og Kanye West í Óskarsverðlaunafögnuði fyrr á árinu.
Kim Kardashian og Kanye West í Óskarsverðlaunafögnuði fyrr á árinu. AFP

Hjónaband raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian og tónlistarmannsins og forsetaframbjóðandans, Kanye West, er undir smásjá fjölmiðla þessa dagana og eru hjónin sögð hafa íhugað skilnað lengi að því fram kemur á vef People. West opnað sig um fjölskyldulíf þeirra á kosningafundi á sunnudaginn og hefur síðan tíst ófögrum orðum um eiginkonu og tengdafjölskyldu.

Hegðun West hefur vakið athygli fjölmiðla síðan hann kynnti forsetaframboð fyrr í júlí. West glímir við geðhvörf og er sjúkdómurinn sagður valda nýjasta útspili hans. Kardashian er sögð íhuga skilnað en á sama tíma birti hún langa færslu á Instagram þar sem hún sagði frá veikindum eiginmanns síns. 

Kanye West.
Kanye West. AFP

West greindi sjálfur frá því á Twitter að hann hefði íhugað að skilja við eiginkonu sína í nóvember 2018. Heimildarmaður Poeple segir að skilnaður hafi verið í pípunum í nokkrar vikur. Annar heimildarmaður segir að samskiptin síðustu daga og vikurnar á undan hafi sýnt að báðir aðilar hafi fengið nóg af hjónabandinu. Eru hjónin sögð hafa verið að reyna að finna út hvernig þau geta alið upp fjögur börn sín í sátt og samlyndi þegar West tók upp á því að bjóða sig fram til forseta og tjá sig opinberlega um fjölskyldu þeirra. 

Kardashian opnaði sig um veikindin

Kardashian opnaði sig í fyrsta skipti um sjúkdóminn á Instagram á miðvikudaginn. Sagði hún að fólk sem þekkti til sjúkdómsins vissi hversu flókinn hann væri og hversu erfitt væri að skilja hann. Sagði hún ekki hafa tjáð sig áður um hvernig veikindi West hefðu áhrif á fjölskyldulíf sitt vegna barna þeirra og rétt hans til þess að halda einkalífi sínu fyrir sig. Í þetta skiptið ákvað þá hún að gera það vegna fordóma og ranghugmynda sem fólk hefur um andleg veikindi. 

Kim Kardashian tjáði sig um veikindi eiginmanns síns, Kanye West, …
Kim Kardashian tjáði sig um veikindi eiginmanns síns, Kanye West, á Instagram. Skjáskot/Instagram

„Þeir sem skilja andleg veikindi eða jafnvel áráttuhegðun vita að fjölskyldan er valdalaus nema um ósjálfráða einstakling er að ræða,“ sagði Kardashian og útskýrði að fólk sem ekki þekkti til gæti verið fordómafullt. Sagði hún síðan eiginmann sinn vera mann með snilligáfu en á sama tíma flókinn mann sem væri heimsfrægur listamaður, svört manneskja og búinn að missa móður sína. Sagði hún að fólk sem þekkir West vissi að orð hans útskýrðu ekki alltaf ásetning hans. 

Félagar West koma honum til hjálpar

Félagar West og umboðsmaður hans eru staddir á búgarði West í Wyoming þar sem tónlistarmaðurinn heldur til. Heimildarmaður People segir félagana vera að reyna útvega West þá hjálp sem hann þarf á að halda. Hann er sagður hafa hitt lækni á mánudaginn og þá var mat læknisins að hann þyrfti ekki að fara á spítala. 

Kanye West og Kim Kardashian eiga fjögur börn.
Kanye West og Kim Kardashian eiga fjögur börn. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson