Geðveiki listamaðurinn ekki endilega besti listamaðurinn

Högni Egilsson, tónlistarmaður og tónskáld, var gestur Skoðanabræðra á föstudag.
Högni Egilsson, tónlistarmaður og tónskáld, var gestur Skoðanabræðra á föstudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Högni Egilsson tónlistarmaður segir fordóma og skilningsleysi ríkja um geðhvörf. Hann var gestur bræðranna Snorra og Bergþórs Mássona í hlaðvarpinu Skoðanabræðrum fyrir helgi og voru þessi mál meðal annars til umræðu í tenglsum við rapparann Kanye West og baráttu hans við geðsjúkdóma. 

„Hann er náttúrulega með bipolar,“ sagði Högni um Kanye. „Ég kljáist við það á hverjum einasta degi af vandvirkni. Það lærist með aldrinum að gera það. Traustið verður að vera til heilbrigðisstofnananna, lækna og svoleiðis. Það er erfiðast í heimi fyrst, eins og hann er að tala um að það sé verið að læsa hann inni á geðdeild. Það er ógeðslega erfitt skref að fara inn á geðdeild, fyrir hvern sem er.“

Það hefur ratað í fréttir undanfarið að Kanye West á við geðræna erfiðleika að stríða. Þeir hafa meðal annars brotist út í opinskáum en á köflum fjarstæðukenndum yfirlýsingum á samfélagsmiðlum um fjölskyldu hans.

Kross að bera en brunnur að tilfinningalífi

Högni er sjálfur með geðhvörf, greindist fyrir átta árum en er að eigin sögn kominn á stöðugan stað. „Með árunum minnka sveiflurnar. Þetta snýst allt um sveiflur. Að taka lyfin sín sómasamlega, halda sig frá örvandi efnum og svolítið vera æðrulaus gagnvart því að þú ert með sjúkdóminn. Það sem ég held að Kanye sé ekki er æðrulaus gagnvart því að hann sé með þetta. Þegar manían fer svona hátt þá er hann bara: „Þið eruð að reyna að taka mig niður. Ég er engill. Ég er guðleg vera.“ 

„Það er þessi leiðinlega hlið af sjúkdómnum, sem er kross að bera en er líka minn brunnur af einhverju tilfinningalífi sem ég myndi aldrei snerta á öðruvísi,“ sagði Högni.

Erfiðleikar í hjónabandi Kim Kardashian og Kanye West hafa ratað …
Erfiðleikar í hjónabandi Kim Kardashian og Kanye West hafa ratað á síður dagblaða undanfarið. Kanye glímir við geðhvörf. AFP

Högni rifjaði það upp í þættinum þegar hann fór sjálfur fyrst inn á geðdeild og setti í samhengi við það sem Kanye gengur í gegnum nú um mundir. „Ég man eftir því fyrst þegar ég fór inn á geðdeild. Þá þurfti ég að halda tónleika inni á Snaps og ég þurfti að hlaupa á móti Reykjavíkurmaraþoninu, af því að ég þurfti að búa til einhverja táknræna aðgerð og snertast við engla. Þú ferð inn í einhvern dulrænan heim sem er eiginlega ekki hægt að lýsa með orðum af því að þetta eru svo kraftmiklar upplifanir.“

Ekki rómantískt að geðveikasti listamaðurinn sé besti listamaðurinn

Högni telur að ekki eigi að upphefja geðsjúkdóma í tengslum við listir. „Það hjálpar þér ekkert að fara inn á geðdeild fimm sinnum í músíkinni. Það sem hjálpar þér er að læra að vera stabíll, að vera góður við umhverfið þitt. Það er ekkert endilega rómantískt að halda að geðveiki listamaðurinn sé besti listamaðurinn. Það er alls ekki þannig,“ sagði Högni.

Hann telur Kim Kardashian, eiginkonu Kanye, bregðast rétt við. „Af því að það eru líka svo miklir fordómar og skilningsleysi, enda líka frekar flókið fyrirbæri, af því að allt í einu heldur Kanye West að hann sé Yeezy eða Guð en síðan fer hann örugglega djúpt í þunglyndi.“ 

Snorri og Bergþór Mássynir halda úti hlaðvarpinu Skoðanabræður.
Snorri og Bergþór Mássynir halda úti hlaðvarpinu Skoðanabræður. Ljósmynd/Aðsend

Bræðurnir Bergþór og Snorri Mássynir halda úti hlaðvarpinu Skoðanabræðrum. Í viðtalinu við Högna ræddu þeir auk geðhvarfanna og Kanye allt á milli himins og jarðar, allt frá kvikmyndatónlist til ferðar Högna til Ítalíu í miðri kórónuveirunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson