Leikkonan Portia de Rossi gaf út yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hún sagðist styðja eiginkonu sína, spjallþáttastjórnandann Ellen DeGeneres. Lítið hefur heyrst frá de Rossi á meðan DeGeneres hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarnar vikur vegna ásakana um slæma framkomu í garð starfsmanna sinna.
„Ég stend með Ellen“ stóð stórum stöfum á bláum bakgrunni á mynd sem de Rossi birti á Instagram. „Til allra aðdáanda okkar... Við sjáum ykkur. Takk fyrir stuðninginn,“ skrifaði de Rossi enn fremur.
Vinnuumhverfið við tökur á þáttum DeGeneres hefur verið sagt eitrað og hafa margir fyrrverandi starfsmenn opnað sig um slæma framkomu stjórnandans. Þátturinn sætir nú rannsókn af hálfu framleiðslufyrirtækisins Warner Media.
View this post on InstagramA post shared by Portia de Rossi (@portiaderossi) on Aug 3, 2020 at 10:03am PDT