Ein skærasta stjarnan í íslenskum tónlistarheimi, Daði Freyr, tók sig til að setti myndband á YouTube af sér taka smellinn Jaja Ding Dong úr Eurovison-myndinni sem nánast hvert einasta mannsbarn á Íslandi er búið að sjá.
Kvikmyndin Eurovison Song Contest: The Story of Fire Saga var frumsýnd á Netflix í lok júní. Hún segir sögu tveggja smástirna í tónlistarheiminum og fara Wills Ferrel og Rachel McAdams með aðalhlutverkin í myndinni.
Hér er myndbandið með Daða Frey:
Hér er lagið úr myndinni. Hver og einn verður svo að gera það upp við sig hvor er betri í þessu: