Rithöfundurinn J.K. Rowling, sem helst er þekkt fyrir Harry Potter-bækurnar, hefur undanfarna daga siglt hringinn í kringum Ísland ásamt fjölskyldu sinni og vinum, að því er fram kemur á vefsíðu Fréttablaðsins.
Fólkið siglir um á snekkjunni Calypso sem skráð er í skattaparadísinni Cayman-eyjum. Leið snekkjunnar lá til Hólmavíkur þar sem Rowling og félagar fengu sér snæðing á veitingastaðnum Galdri og heimsóttu í kjölfarið Galdrasafnið. Þaðan fóru þau út klyfjuð varningi, segir í frétt Fréttablaðsins. Frá Hólmavík sigldi hópurinn að Drangsnesi.
Fréttablaðið fullyrðir að Rowling og fylgdarlið hennar hafi komið hingað til lands með einkaflugi en Snekkjan kom frá St. Johns á Nýfundnalandi.