„Gamaldags braskari og svindlari“

Heimir Björgúlfsson býr og starfar í Los Angeles.
Heimir Björgúlfsson býr og starfar í Los Angeles. Ljósmynd/Friðgeir Helgason.

Heimir Björgúlfsson myndlistarmaður, sem býr og starfar í Los Angeles, er einn þeirra sem nú sýna í Listasafninu á Akureyri og lýkur sýningu hans 16. ágúst. Sýningin ber titilinn Zzyzx og er í sölum 3 og 4. Heimir komst ekki til Íslands vegna kórónuveirunnar og því verður listamannaspjall með honum á lokadegi sýningarinnar, 16. ágúst kl. 15, í gegnum netið.

Titilverk sýningarinnar er ljósmynda-klippimyndasería sem Heimir vann út frá myndum sem hann tók í Zzyzx í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu. Hann segir þennan stað í eyðimörkinni hafa verið endurnefndan og gefið þetta furðulega nafn af Curtis Howe Springer nokkrum árið 1944 sem vildi að staðurinn væri síðastur í stafrófsröð. Heimir segir Springer hafa fengið leyfi fyrir námugreftri á staðnum en hann kom þar á laggirnar heilsulind og hóteli með fríu vinnuafli útigangsmanna. Gekk allt að óskum hjá Springer þar til hann var dæmdur í fangelsi árið 1974 fyrir margs konar svindl tengt landareigninni. Heimir segir staðnum síðar hafa verið breytt í háskólamiðstöð í jarðfræði og var nafninu haldið, hinu stórfurðulega Zzyzx.

Verk eftir Heimi á sýningu hans Zzyzx.
Verk eftir Heimi á sýningu hans Zzyzx.

Ómögulegar aðstæður

Blaðamaður hafði samband við Heimi og bað hann fyrst að segja aðeins frá sér, námi og störfum og hvers vegna hann hafi endað í Los Angeles. „Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík en fór og lærði í Hollandi við Gerrit Rietveld-listaháskólann og Sandberg-stofnunina í Amsterdam þar sem ég bjó í sjö ár áður en ég flutti fyrir hálfgerða tilviljun til Los Angeles. Mér var upprunalega boðið til Los Angeles í dvöl á listamannavinnustofu, „artist in residence“, í þrjá mánuði og mér líkaði svo vel hér að ég flutti alfarið. Ég varð að fara aftur til Amsterdam út af dvalarleyfi og slíku en fyrsta morguninn sem ég vaknaði aftur heima hjá mér voru mér fullkomlega ljós þessi kaflaskipti og að ég ætlaði að flytja til Kaliforníu,“ svarar Heimir.

–Þú sýnir í safninu ljósmynda-klippimyndaseríu unna úr ljósmyndum sem eru teknar í Zzyzx í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu. Hvers vegna varð sá staður, þ.e. eyðimörkin, fyrir valinu og hvers vegna notarðu þessa aðferð, klippimyndina?

„Öll myndlist sem ég geri er meira eða minna byggð á klippimyndaaðferðinni, að setja saman ólíka hluti og búa til ómögulegar aðstæður, hvort sem það verða ljósmyndaklippimyndir, málverk eða skúlptúrar. Ég fer oft til Mojave-eyðimerkurinnar til að ljósmynda enda er þetta stór og margbreytileg eyðimörk sem er á köflum ekki svo ólík íslenskri auðn en samt akkúrat andstæðan við hana hvað varðar liti, lykt, flóru og auðvitað hitastig,“ svarar Heimir.

„Á þjóðvegi 15 sem liggur til Las Vegas er skilti sem á stendur „Zzyzx Road“. Ég hafði alltaf verið forvitinn um þetta nafn og einn daginn beygði ég þar út af. Það var samt ekki fyrr en ég kynnti mér sögu staðarins sem hugmyndin af verkunum kom til mín og ég fór að fara aftur og aftur til Zzyzx til að ljósmynda staðinn og nágrennið.“

–Curtis Howe Springer nefndi staðinn þessu nafni árið 1944. Tengist Springer sýningunni, kemur hann við sögu í verkunum með einhverjum hætti?

„Curtis Howe Springer er ástæðan fyrir verkunum á sýningunni. Þetta var maður sem - ef svo mætti að orði komast - var ekta gamaldags braskari og svindlari. Hann þóttist vera með hinar og þessar gráður frá háskólum sem voru ekki einu sinni til og var veitt leyfi fyrir námugreftri á stað í Mojave-eyðimörkinni sem hét Soda Springs árið 1944. Hann fór strax að gera allt annað en að stunda námugröft. Hann endurnefndi staðinn Zzyzx svo það yrði síðasta orðið í stafrófinu og dreif sig að byggja upp heilsulind og hótel með vinnuafli samansmalaðra útigangsmanna frá Los Angeles sem fengu ekki greidd laun fyrir verkamannavinnu heldur fæði og húsnæði. Hann auglýsti til sölu ýmiss konar heilsuvörur, hollustufæði og náttúrulækningar á fölskum forsendum, vörur unnar úr steinefnum sem væru aðeins til í Zzyzx en hann var ekki með neina námu og notaði engin steinefni. Hann breytti landslaginu með uppbyggðum tjörnum og óviljandi bjargaði hann þannig fiskitegundinni Mojave Tui Chub frá útrýmingu vegna loftslagsbreytinga. Hann lét leggja vegi og götur á milli bygginganna með nöfnum eins og „Boulevard of Dreams“. Gestir gátu baðað sig í heilsuböðum og voru með stórfenglegt útsýni yfir eyðimörkina á milli þess sem þeir fengu svokallaðar heilsumáltíðir og -drykki sem voru, oftar en ekki, kanínukjöt og einfaldur gulrótasafi. Þessu hélt hann áfram í 30 ár þangað til yfirvöld stöðvuðu hann. Árið 1974 er hann borinn af landareigninni af alríkislögreglumönnum eftir að hafa neitað brottfararskipun,“ segir Heimir.

„Í dag er Zzyzx samansafn af byggingum sem eru nýttar fyrir jarðfræðirannsóknir af sameiginlegu verkefni háskóla í Kaliforníu og þar standa líka tómar upprunalegu byggingarnar sem Curtis byggði. Þótt innblásturinn að verkunum sé byggður á atburðum sem gerðust frá 1944 til 1974 í afskekktri eyðimörk í Kaliforníu á þetta mjög við í dag í alþjóðlegu samhengi. Í verkunum mínum á sýningunni vil ég varpa fram spurningum um hvernig við göngum að umhverfinu sem vísu og notfærum okkur það án tillits til þess. Hvernig skammtímagróðasjónarmið gera okkur blind og hvernig við sannfærum okkur um að slík hegðun sé ekki svo slæm. Ég sé í þessari sögu hliðstæður við mannlega hegðun og spyr hvaða gildismat náttúran og umhverfið hefur.“

Hluti sýningar Heimis í Listasafninu á Akureyri.
Hluti sýningar Heimis í Listasafninu á Akureyri.

Sérkennilegt ástand

–Hvernig er ástandið hjá þér í Covid-kófinu, hvernig er lífið í Los Angeles þessa dagana?

„Ástandið er sérkennilegt, vægast sagt, en þó er lífið ekki svo slæmt fyrir mig persónulega meðan á þessu stendur. Sem betur fer er vinnustofan mín fyrir aftan húsið okkar þannig að ég var með aðgang að henni þegar öllu var lokað og enginn mátti fara eitt né neitt. Það var að vísu mjög erfitt að ná einbeitingu fyrstu tvær vikurnar eftir lokunina, enginn vissi hvað var að gerast en svo er mannskepnan svo aðlögunarhæf að það var eins og maður vendist aðstæðum og ég gat unnið án of mikilla erfiðleika aftur,“ svarar Heimir.

„Þetta er engu að síður langþreytt ástand núna, allir hér eru orðnir þreyttir á þessu og þetta hefur orðið mikil áhrif á andann í þjóðfélaginu enda er enginn við stjórn hérna í Bandaríkjunum við að uppræta faraldurinn, hvert ríki á að sjá um sig sjálft sem er engan veginn hægt. Hvernig á eitt ríki að sporna við þegar allt er opið í næsta ríki? Og svo framvegis. Þessu má líkja við sundlaug sem á að vera hrein en samt er eitt horn sem fólk mígur í og heldur svo að það mengi ekki alla laugina. En maður fer bara í gegnum þetta eins og aðrir, ekkert annað í stöðunni hvort eð er. Sem betur fer eru kosningar hér í haust.“

Nýtir tímann í tilraunir

– Hvað er fram undan hjá þér, sýningar eða annað?

„Ég hef notað einangrunina til ýmissa tilrauna á vinnustofunni enda er ekki alltaf tími sem maður getur gefið sér til þess, öll plön eru upp í loft þangað til þessum vírus verður komið undir einhvers konar stjórn. Ég er að vísu að fara að gera stóra utandyraveggmynd fyrir einn safnara hér. Og vonandi næ ég svo sem fyrst að skreppa aðeins upp í sveit í smáfrí með fjölskylduna,“ segir Heimir að lokum og ítrekar að hann muni spjalla af netinu við sýningargesti fyrir norðan, sunnudaginn 16. ágúst klukkan 15.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant