Bella Hadid með Lyme-sjúkdóm

Bella Hadid hefur glímt við Lyme-sjúkdóminn síðustu ár.
Bella Hadid hefur glímt við Lyme-sjúkdóminn síðustu ár.

Bella Hadid tjáði sig á dögunum á Instagram um baráttu sína við Lyme-sjúkdóminn. Hún greindist með hann árið 2012. Hadid sem er 23 ára lýsti einkennunum sem hún þarf að lifa með. 

Meðal einkenna hennar eru óreglulegur hjartsláttur, skapsveiflur, liðverkir, svitakóf, ógleði, erfiðleikar með öndun og líkamsrækt, svefnleysi, höfuðverkir, kvíði og ringulreið.

„Dag hvern finn ég fyrir að minnsta kosti tíu einkennum sjúkdómsins og hef gert síðan ég var fjórtán ára. Einkennin urðu síðan verri þegar ég varð átján ára.

Sjúkdómurinn hafði mikil áhrif á minnið. Fyrst þegar ég varð veik mundi ég skyndilega ekki eftir því hvernig átti að aka frá Malibu til Santa Monica þar sem ég bjó. Ég var of veik. Ég þurfti að selja hestinn minn því ég gat ekki hugsað um hann,“ segir Hadid sem var mikil hestakona og sá fyrir sér dag einn að keppa í hestafimi. Hún varð að setja þann draum á hilluna eftir að hún greindist með Lyme-sjúkdóminn.

Aðrar stjörnur sem glíma við Lyme eru Alec Baldwin, Justin Bieber, Shania Twain, Kelly Osbourne og Ben Stiller.

Lyme-sjúkdómur er smitsjúkdómur af völdum bakteríu sem berst í menn eftir bit sýkts skógarmítils.

Hér merkir Hadid við öll einkennin sem hún glímir við …
Hér merkir Hadid við öll einkennin sem hún glímir við alla daga. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant