Kvikmyndir Vitrana kynntar

Úr Nótt konunganna, La nuit des rois.
Úr Nótt konunganna, La nuit des rois.

Átta kvikmyndir keppa í Vitranaflokki RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem hefst 24. september. Vitranir eru aðalkeppnisflokkur hátíðarinnar og í honum eru framsæknar kvikmyndir eftir upprennandi leikstjóra sem tefla fram sinni fyrstu eða annarri mynd. Aðalverðlaun hátíðarinnar, Gullni lundinn, eru veitt fyrir bestu myndina í þessum flokki og voru myndirnar átta sérvaldar  af dagskrárstjóranum Frédéric Boyer. Um kvikmyndirnar átta segir eftirfarandi í tilkynningu frá RIFF:

Einmana klettur/Lonely Rock

Norðurlandafrumsýning á fyrstu kvikmynd hins upprennandi argentínska kvikmyndagerðarmanns Alejandros Telémacos Tarrafs í fullri lengd. Myndin var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam fyrr á árinu. Í myndinni segir frá lamadýrahirðinum Fidel sem býr uppi á argentínska hálendinu 4.000 metra yfir sjávarmáli og ferðalagi hans til að verja lífsviðurværi sitt. Hrjóstugt landslagið og óhefðbundar tökur ramma inn þessa áhugaverðu mynd.  

Úr Lonely Rock.
Úr Lonely Rock.

Nótt konunganna/Night of The Kings

Nótt konunganna kemur beint af kvikmyndahátíðinni í Feneyjum, elstu og einni virtustu hátíð í heimi. Leikstjóri myndarinnar Philippe Lacote ólst upp í Abidjan á Fílabeinsströndinni þar sem myndin gerist en sögusvið hennar er hið alræmda La Maca-fangelsi þar sem fangarnir ráða ríkjum. Í Nótt konunganna segir frá ungum manni sem lendir í fangelsinu og er úthlutað hlutverki sögumanns. Samkvæmt reglum í La Maca mun hann ekki geta flúið örlög sín en reynir hvað hann getur með því að láta söguna endast til morguns.

Skítapleis/Shithouse

Hinn kornungi leikstjóri Cooper Raiff frá Dallas, Texas, gerði sér lítið fyrir og skrifaði, leikstýrði, klippti og lék í Skítapleisi, sinni fyrstu mynd í fullri lengd. Hér segir af Alex, einmana fyrstaársnema í háskóla sem dreymir um það eitt að flytjast nær fjölskyldu sinni. Honum hefur ekki tekist að fóta sig í háskólalífinu og hefur einangrað sig með öllu en eitt kvöldið ákveður hann að slá til og fara í partí í hið alræmda Skítapleis háskólasvæðisins. Hann eyðir nóttinni með Maggie, nemendafulltrúa heimavistarinnar, og verður hugfanginn af henni. Tilfinningar hans eru hins vegar ekki endurgoldnar og Alex leitar örvæntingarfullra leiða til að ná athygli hennar.

Svig/Slalom

Fyrsta mynd leikstjórans Charléne Favier í fullri lengd kemur beint af kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hér segir af hinni 15 ára gömlu Lyz sem nýlega hefur hlotið skólavist í eftirsóttum skíðaskóla með það fyrir augum að gerast atvinnuskíðakona. Þar misnotar einn kennaranna vald sitt gagnvart Lyz en myndin þykir gefa óvenju raunsæja sýn á kynferðislegt ofbeldi í keppnisíþróttum. Favier hefur framleitt bæði stuttmyndir og heimildamyndir og var mynd hennar Odol Gorro tilefnd til César-verðlaunanna 2020 sem besta stuttmyndin.  

Veggspjald Slalom.
Veggspjald Slalom.

Þetta er ekki jarðarför, þetta er upprisa/This is not a burial, its a resurrection

Mynd leikstjórans Lemohangs Jeremiahs Moseses, sem hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á Sundance-kvikmyndahátíðinni og kvikmyndahátíðinni í Portland og aðalverðlaun á Taipei-kvikmyndahátíðinni. Leikstjórinn er handritshöfundur, leikstjóri og listamaður frá Lesótó sem búsettur er í Berlín. Í myndinni segir af áttræðu ekkjunni Mantoa sem fer að undirbúa eigin dauðdaga eftir að hún missir eina eftirlifandi son sinn í námuslysi. Áform hennar um friðsæl ævilok fara hins vegar á annan veg þegar hún kemst að því að byggja eigi uppistöðulón í þorpinu, sem mun setja kirkjugarðinn á flot. Í kjölfar þess fær Mantoa bæjarbúa með sér í lið til að berjast gegn framkvæmdum og síðustu ævidagarnir verða eftirminnilegri en hún hafði gert sér í hugarlund. 

Úr kvikmyndinni This is not a Burial.
Úr kvikmyndinni This is not a Burial.

Hold og blóð/Wildland 

Danska myndin Hold og blóð er í leikstjórn Jeanette Nordahl sem hefur skotið upp á stjörnuhimininn síðastliðin ár en hún var m.a. var aðstoðarleikstjóri hinnar margverðlaunuðu sjónvarpsseríu Borgen. Útskriftarmynd hennar Waiting for Phil var tilnefnd til Dönsku kvikmyndaverðlaunanna sem besta stuttmyndin árið 2013. Hold og blóð er hennar fyrsta kvikmynd í fullri lengd. Wildland er fyrsta mynd Jeanette í fullri lengd þar sem áhorfandinn er látinn kljást við þá áleitnu spurningu hverju hann sé tilbúinn að fórna fyrir fjölskyldu sína.

Úr dönsku kvikmyndinni Kød & blod eða Hold og blóð …
Úr dönsku kvikmyndinni Kød & blod eða Hold og blóð í íslenskri þýðingu.

Síðustu vordagarnir/Last Days of Spring

Kvikmyndir leikstjórans Isabel Lamberti eru á mörkum heimildamynda og leikinna mynda. Nýjasta kvikmynd hennar, Síðustu vordagarnir, verður frumsýnd á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni á Spáni sem er afar virt hátíð um miðjan september. Í myndinni er sögð saga fjölskyldu sem býr í hinu ólöglega La Cañada Real í Madríd og lifir lífi sínu í biðstöðu. Í myndinni er teflt saman raunverulegu umhverfi og fólki í anda heimildamynda en tvinnað saman söguþræði sem ekki á sér stoð í raunveruleikanum.

200 Metres/200 metrar

Beina leið frá heimsfrumsýningu á Feneyjahátíðínni, elstu og einni virtustu hátíð í heimi, mun RIFF sýna kvikmynd palestínska handritshöfundarins og leikstjórans Ameens Nayfehs 200 metrar. Í myndinni segir frá átakanlegu ferðlagi hins palestínska Mustafa, sem býr á vinstri bakkanum, við að sameinast syni sínum sem liggur á sjúkrahúsi á hægri bakkanum. Aðeins 200 metra ferðalag verður að 200 km þrautagöngu þar sem smyglarar og aðrir vafasamir ferðalangar verða á vegi föðurins. Snilldarverk sem beðið hefur verið eftir.

RIFF verður sett í 17. sinn hinn 24. september og verða kvikmyndirnar sýndar á vefnum riff.is þar sem hægt verður að kaupa sér miða og allir landsmenn eiga því að geta notið hátíðardagskrárinnar sem og aðrir sem ekki eiga heimangengt, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant