Kallaðar skækjur og hórur

Nadía Sif Líndal og Lára Clausen, stúlkurnar tvær sem heimsóttu ensku landsliðsmenn­ina Phil Fod­en og Ma­son Greenwood á hót­el þar sem enska liðið dvaldi um helgina, hafa fengið að finna fyrir því á samfélagsmiðlum síðastliðinn sólarhringinn. Hafa þær verið kallaðar öllum illum nöfnum og athugasemdakerfið á instagramsíðum þeirra fyllst af athugasemdum frá erlendum aðilum.

Nadíu og Láru hefur verið kennt um brottrekstur þeirra Fodens og Greenwoods úr landsliðinu og þær verið kallaðar skækjur, hórur og hjónadjöflar. Foden á kærustu og saman eiga þau son.

Um tíma hrönnuðust inn fylgjendur á instagramsíður þeirra beggja og í dag hefur fylgjendahópur Nadíu tvöfaldast á samfélagsmiðlinum. 

Til vinstri má skjá skjáskot af athugasemdakerfinu við Instagram-mynd Nadíu …
Til vinstri má skjá skjáskot af athugasemdakerfinu við Instagram-mynd Nadíu Sifjar seinni partinn í gær. Til hægri má skjá skjáskot af athugasemdum við Instagram-mynd Láru í morgun. Samsett mynd

Fjallað hefur verið um þær í breskum fjölmiðlum og á vefmiðli The Sun má meðal annars finna grein um Nadíu og hver hún er. 

Margir hafa komið konunum til varnar á samfélagsmiðlum og bent á að ósanngjarnt sé að skella skuldinni á þær tvær. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, bendir á að það hafi vissulega verið heimskulegt af þeim með tilliti til sóttvarna. 

„Tvær ungar konur (ekki opinberar persónur) hitta tvo fótboltamenn á sama aldri. Þetta var vissulega heimskulegt, vegna reglna um sóttvarnir, en getum við verið sammála um það að það sé algjör óþarfi að fara hamförum á samfélagsmiðlum með slíkum hroða að það mun augljóslega valda þessum ungu konum nokkrum skaða? Rétt upp hönd þið sem aldrei hafið gert neitt heimskulegt. Rétt upp hönd þið sem þakkið fyrir það á hverjum degi að samfélagsmiðlar voru ekki til þegar þið voruð á aldrinum 15-25. Eigum við kannski að gefa þeim smá séns?“ skrifar Helga Vala á Facebook

Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé ráðgjafi tekur undir með Helgu Völu í færslu sinni á Facebook.

Tónlistarkonan Elísabet Ormslev tekur einnig upp hanskann fyrir Nadíu og Láru og segir þetta vissulega hafa verið dómgreindarleysi hjá stelpunum en að hún skuli kaupa kippu af bjór handa þeim sem gerðu ekki mistök og skitu upp á bak einhvern tímann fyrir eða um tvítugt. 

Skjáskot af færslu CorvusCorax síðan í gær.
Skjáskot af færslu CorvusCorax síðan í gær. Skjáskot/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant