Upplifa alla liti lífsins

„Hér ríkir kraftur og gleði og við erum heldur betur …
„Hér ríkir kraftur og gleði og við erum heldur betur tilbúin til að taka á móti gestum. Okkar aðalhlutverk er að halda utan um hug og hjörtu landsmanna og það ætlum við svo sannarlega að gera,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússtjóri. mbl.is/Árni Sæberg

„Í raun mætti nefna komandi leikár 2020-2021+ því það er allt á hreyfingu vegna kófsins og við hreyfumst með. Það gefur augað leið að við höldum ekki sömu framleiðni og áætlað var. Við höfum hvorki fjárhagslegt bolmagn í það né tíma á sviði eða sýningarkvöld,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússtjóri um nýhafið starfsár.

„Eftir stendur að hér ríkir kraftur og gleði og við erum heldur betur tilbúin til að taka á móti gestum. Okkar aðalhlutverk er að halda utan um hug og hjörtu landsmanna og það ætlum við svo sannarlega að gera,“ segir Brynhildur og bendir á að gildandi samkomutakmarkanir liti framboð leikhússins. Segir hún ekkert launungarmál að nándartakmarkanir í sal feli í sér að aðeins sé hægt að vera með um 35% sætanýtingu og höggvi því skarð í fjárhag leikhússins. „Það er ekki nema fyrir ábyrgan rekstur síðustu ára sem við höldum sjó í núverandi ástandi. Við færum tvær sýningar frá þessu leikári til þess næsta,“ segir Brynhildur og vísar þar til Caligula eftir Camus í leikstjórn Javors Gardev og Þéttingar hryggðar eftir Dóra DNA og Unu Þorleifsdóttur í leikstjórn Unu. 

Það verður að vera gaman

„Að auki endurhugsum við sýninguna Room 4.1 – Live eftir Kristján Ingimarsson og lögum okkur að aðstæðum. Úrvalið er þó aldeilis fullnægjandi,“ segir Brynhildur og tekur fram að hún bindi miklar vonir við að sýningar á Bubba-söngleiknum Níu lífum eftir Ólaf Egil Egilsson í leikstjórn höfundar geti hafist á ný á Stóra sviðinu 1. október. „Sem stendur erum við með 32 uppseldar sýningar,“ segir Brynhildur og bendir á að stór hluti þeirra sem náði að sjá þær þrjár sýningar sem sýndar voru á Níu lífum í mars áður en samkomubannið skall á hafi þegar keypt sér miða til að sjá sýninguna aftur. „Gleðin, orkan og krafturinn í kringum þessa sýningu er mögnuð og við bíðum vægast sagt með óþreyju eftir að hefja sýningar á ný,“ segir Brynhildur og tekur fram að leikhúsið sé kortagestum sínum þakklátt fyrir sýndan skilning og tryggð á erfiðum tímum.

Í raun má segja að yfirstandandi leikár hafi hafist um liðna helgi þegar uppfærsla sviðslistahópsins CGFC á Kartöflum var tekin aftur til sýningar. „Þetta er dásamleg sýning,“ segir Brynhildur og rifjar upp að Kartöflur hafi verið hluti af röðinni Umbúðalaust sem hóf göngu sína á síðasta ári og er vettvangur tilrauna ungs sviðslistafólks. „Líkt og yfirskriftin gefur til kynna þá setjum við þar áhersluna á innihaldið þar sem umbúðirnar eru aukaatriði,“ segir Brynhildur og bendir á Umbúðalaust-sýningin Ertu hér? eftir Ásrúnu Magnúsdóttur og Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur sem vera átti í vor verði sýnd í október. „Í vetur bjóðum við síðan leikskáldum hússins, Matthíasi Tryggva Haraldssyni og Evu Rún Snorradóttur, að setja upp sitt verkið hvort í vinnslu undir merkjum Umbúðalauss, sem spennandi verður að sjá,“ segir Brynhildur og undirstrikar mikilvægi þess að Borgarleikhúsið sé í virku samtali við grasrótina.

Fyrsta frumsýning leikársins er Oleanna eftir David Mamet í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur á Nýja sviðinu 18. september í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar og Gunnars Gunnsteinssonar, sem frestað var í vor vegna kófsins. „Hér er á ferðinni kraftmikið og beitt verk sem talar enn beint inn í samtímann. Lykilspurningar verksins snúast um vald og valdaleysi.“

Fyrsta frumsýningin á Stóra sviðinu verður Veisla eftir Sögu Garðarsdóttur og leikhópinn í leikstjórn Bergs Þór Ingólfssonar þar sem veislumenning landans er til skoðunar. „Þessa sýningu átti að frumsýna í vor. Þegar ég sá hvaða efnivið þau voru með í höndunum fannst mér einboðið að stækka sýninguna og færa frá Litla yfir á Stóra sviðið,“ segir Brynhildur og bendir á að Veisla verði kærkomin öllum þeim sem misst hafi af veislum í kófinu. „Þetta er myljandi fyndin nútímarevía þar sem mottóið er: Það verður að vera gaman.“

Morðgáta og ástarbréf

Útlendingurinn – morðgáta nefnist nýtt verk úr smiðju Friðgeirs Einarssonar og í leikstjórn Péturs Ármannssonar sem frumsýnt verður á Litla sviðinu 2. október. „Þetta er annað verkið í ráðgátuþríleik Friðgeirs hér í Borgarleikhúsinu sem hófst með Club Romantica í fyrra. Í þessu verki reynir Friðgeir að leysa 50 ára gamalt morðmál og komast að því hvað kom fyrir Ísdalskonuna svonefndu sem fannst látin skammt frá Bergen 1970,“ segir Brynhildur og tekur fram að dásamlegt sé að fylgjast með Friðgeiri að störfum. „Friðgeir er meistari í einlægu, fallegu og óþægilega fyndnu leikhúsi.“

Síðasta frumsýning almanaksársins er Orlandó eftir Virginiu Woolf í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur á Nýja sviðinu 30. desember. „Skáldsaga Woolf hefur verið nefnd lengsta og fallegasta ástarbréf sögunnar. Í verkinu er ferðast gegnum 400 ára sögu Englands með unglingspiltinum Orlandó sem nótt eina í Konstantínópel sofnar og vaknar viku síðar sem kona,“ segir Brynhildur og bendir á að verkið fjalli ekki síst um mikilvægi þess að raddir listakvenna fái að heyrast. „Það er okkur sérstakt ánægjuefni að geta kynnt glænýtt listrænt teymi til leiks. Arnbjörg María Danielsen leikstýrir og gerir leikgerðina í samvinnu við þýðandann, Ingibjörg Jara Sigurðardóttir hannar leikmynd og búninga og Herdís Stefánsdóttir semur tónlistina,“ segir Brynhildur sem er full tilhlökkunar að sjá útkomuna. „Arnbjörg er með brakandi ferskan leikhóp, þau Völu Kristínu Eiríksdóttur, Láru Jóhönnu Jónsdóttur og Jörund Ragnarsson auk þess sem við bjóðum til okkar tveimur nýútskrifuðum leikurum, þeim Árna Þór Lárussyni og Daníel Takefusa, sem báðir lærðu leiklist í London.

Fagna 40 ára leikafmæli sínu

Fyrsta frumsýning á nýju ári verður Sölumaður deyr eftir Arthur Miller í þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar og leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur á Stóra sviðinu 15. janúar. „Þarna er um að ræða stórvirki Millers sem Kristín ætlar að skoða út frá heimspeki Jean-Pauls Sartres, sem er gríðarlega spennandi. Gyða Valtýsdóttir semur tónlistina, Brynja Björnsdóttir hannar leikmyndina og Þórunn María Jónsdóttir búningana. Það er því mikið kvennafans sem stendur að uppsetningu þessa mjög svo karllæga verks,“ segir Brynhildur og bendir á að meðal nýrra leikara séu Þorsteinn Bachmann, Stefán Jónsson og Rakel Ýr Stefánsdóttir, sem er nýútskrifuð úr LHÍ. „Í aðalverkum eru Jóhann Sigurðarson og Sigrún Edda Björnsdóttir, sem með þessari uppfærslu fagna 40 ára leikafmæli sínu.“

Tónleikhús fyrir börn

Leikritið Taktu lagið Lóa eftir Jim Cartwright í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar verður frumsýnt á Nýja sviðinu í mars. „Þar heldur Þóra Karítas Árnadóttir um taumana en hún leikstýrir þessum gullmola Cartwrights. Rakel Björk Björnsdóttir fer með titilhlutverkið sem er margslungið og fallegt,“ segir Brynhildur og bendir á að Katla Margrét Þorgeirsdóttir fari með veigamikið hlutverk móður Lóu. „Þetta er í senn harmræn og fyndin saga, en í aðstæðum verksins er ekki pláss fyrir þá næmni, fegurð og kærleika sem Lóa býr yfir. Þriggja manna hljómsveit verður á sviðinu og því spilað á allan tilfinningaskalann.“

Ég hleyp eftir Line Mørkeby í þýðingu Auðar Övu Ólafsdóttur og leikstjórn Baldvins Z birtist á Nýja sviðinu í vor. „Þarna ætlar okkar allra besti Gísli Örn Garðarsson að hlaupa til góðs,“ segir Brynhildur, en tekjur Gísla Arnar af sýningunni renna til samtakanna Nýrrar dögunar, Bergsins, Ljónshjarta og Dropans. „Þetta er frábært leikrit sem fjallar um mann sem byrjar að hlaupa eftir barnsmissi,“ segir Brynhildur, en ráðgert er að Gísli Örn þurfi að hlaupa 10-12 km á hverri sýningu. „Síðasta frumsýning leikársins er svo upplifunarleikhús Kristjáns Ingimarssonar sem snýr okkur öllum á hvolf í Room 4.1 – Live. Þátttakendur eru leikarar Borgarleikhússins og dansarar Íslenska dansflokksins,“ segir Brynhildur, en frumsýnt verður á Stóra sviðinu í mars.

Að vanda býður Borgarleikhúsið upp á tvær samstarfssýningar á leikárinu, en í ár er um tvær barnasýningar að ræða. Annars vegar Stúlkan sem stöðvaði heiminn í leikstjórn Helgu Arnalds, sett upp í samstarfi við sviðslistahópinn 10 fingur, sem frumsýnd verður á Litla sviðinu 30. október og hins vegar Fuglabjargið eftir Birni Jón Sigurðsson í leikstjórn Hallveigar Kristínar Eiríksdóttur, sett upp í samstarfi við sviðslistahópinn Hin fræga önd, sem frumsýnd er á Litla sviðinu í janúar.

„Í Stúlkunni sem stöðvaði heiminn er á myndrænan, fræðandi og fallegan hátt verið að fjalla um sóun, rusl og hvernig við ætlum að hugsa um heiminn okkar. Þau notast við vídeóvörpun til að segja söguna þar sem hið smæsta verður hið stærsta,“ segir Brynhildur og bendir á að áhorfendum verði boðið að taka þátt í listasmiðju að sýningu lokinni.

Fuglabjargið er áferðarfagurt tónleikhús fyrir börn þar sem hljóðfæraleikarar og söngvarar verksins bregða sér í allra fugla líki,“ segir Brynhildur, en tónlist verksins er í höndum Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur. „Áhorfendur fá að fylgjast með einu ári á eyjunni Skrúði fyrir mynni Fáskrúðsfjarðar og kynnast fuglalífinu þar.“ Auk þess verða barnasýningarnar Gosi, sem hlaut Grímuna 2020 sem barnasýning ársins og Jólaflækja einnig sýndar á leikárinu.

Ragnar með Skyndileikhús

Þrjár gestasýningar verða sýndar í Borgarleikhúsinu í vetur. Fyrst ber þar að nefna Rocky eftir Tue Biering í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar sem sýnd verður á Nýja sviðinu í febrúar. „Það er ótrúlega gaman að geta tekið á móti Rocky í uppfærslu Óskabarna ógæfunnar, enda féllum við algjörlega fyrir þessari sýningu sem er bæði ætandi og tætandi ,“ segir Brynhildur og rifjar upp að Sveinn Ólafur Gunnarsson hafi fengið Grímuna 2020 sem leikari ársins fyrir hlutverk sitt.

„Hinar tvær gestasýningarnar eru óperur sem sýndar verða undir hatti Óperudaga í Reykjavík í október. Þetta eru óperurnar Kok eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttir í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur og Corpo Surreal sem unnin er í samstarfi við Alþýðuóperuna. „Það er gríðarlega spennandi að geta boðið upp á óperusýningar í Borgarleikhúsinu,“ segir Brynhildur.

„Í fyrra hóf göngu sína verkefnið Kvöldstund með listamanni, sem tókst afar vel og verður framhaldið í vetur. Fyrsta kvöldstundin nefnist Fílalag og verður í október þar sem Bergur Ebbi og Snorri Helgason fíla lag í anda samnefnds hlaðvarps þeirra,“ segir Brynhildur og bendir á að seinni hluti sýningarinnar verði nokkurs konar barsvar. „Milda hjarta hefur síðan göngu sína í nóvember, en þar mun tónlistarmaðurinn Jónas Sig taka áhorfandann með sér í óvenjulegt ferðalag tals og tóna frá krumpaðri karlmennsku til mennsku hins milda hjarta,“ segir Brynhildur, en leikstjóri verksins er Þorsteinn Bachmann. „ Vera Illugadóttir og Hallur Ingólfsson stíga svo á svið með Í ljósi sögunnar í janúar, en um er að ræða fjórar kvöldstundir í samstarfi við RÚV.

Hér í Borgarleikhúsinu verður því í vetur hægt að upplifa alla liti lífsins – en eins og við vitum eru þeir bæði bjartir og dimmir,“ segir Brynhildur og bendir á að sem viðbragð við kófinu ætli Borgarleikhúsið að auki að bjóða upp á Skyndileikhús. „Það eru viðburðir sem auglýstir verða með stuttum fyrirvara og aðeins haldnir einu sinni. Þeir eru hugsaðir sem nokkurs konar stækkuð mynd af streyminu okkar, sem mæltist afar vel fyrir í vor. Fyrsti viðburðurinn er 24. september en þá sameina Saga Garðarsdóttir, Ugla Egilsdóttir og Ragnar Kjartansson krafta sína á Stóra sviðinu í óvæntum leik. Loks má nefna að við höldum áfram að bjóða upp á textun sýninga á Stóra sviðinu þar sem áhorfendur geta í gegnum smáforrit fengið textun á íslensku, ensku og pólsku.“

Viðtalið við Brynhildi birtist fyrst í Morgunblaðinu fimmtudaginn 10. september. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson