Helgi Björns snýr aftur í sjónvarpið á morgun

Það er komin Helgi.
Það er komin Helgi. Ljósmynd/Aðsend

Tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson snýr aftur í Sjónvarp Símans um helgina en nú undir nýjum formerkjum og nafni, en þátturinn hefur fengið nafnið „Það er komin Helgi“. Helgi vann hug og hjarta landsmanna í þáttunum Heima með Helga í vetur en þar tók hann á móti gestum í kvöldvökustemningu í beinni útsendingu heim til landsmanna. 

Þátturinn sem hefst á morgun verður sambærilegur fyrri útsendingum Helga hjá Sjónvarpi Símans en þó með ögn breyttu sniði. Nú verða þættirnir ekki „heima hjá Helga“ heldur sendir út frá Hlégarði í Mosfellsbæ. Helgi tekur sem fyrr á móti einvalaliði gesta, hvort sem þeir koma úr röðum tónlistarmanna eða leikara, en gestalisti Helga verður hulinn miklum leyndarhjúpi og kemur ekki í ljós fyrr en í útsendingunni hverjir eru gestir kvöldsins hverju sinni.

Í nýju seríunni verður gefið meira rými fyrir kerskni og gamanmál. „Okkur langaði aðeins að víkka rými samtalsins og gefa okkur færi á smá sprelli en auðvitað er tónlistin, sem fyrr, alltumlykjandi í þessu hjá okkur. Sú formúla fór vel í landsmenn og engin ástæða til að breyta því,“ segir Helgi, sem nú getur orðið bætt titlinum þáttarstjórnandi við röð titla á borð við söngvari, leikari og framleiðandi svo eitthvað sé upp talið. 

Þættirnir verða sex núna í haust og hefja göngu sína annað kvöld, laugardagskvöld, klukkan 20:00.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant