„Síðan hef ég bara málað“

Listamaðurinn Reinar er fluttur aftur heim frá Brüssel og sýnir …
Listamaðurinn Reinar er fluttur aftur heim frá Brüssel og sýnir næst á myndlistarkaupstefnunni í Moskvu.

Íslenski myndlistarmaðurinn Reinar Foreman er í góðum hópi listamanna, bæði ungra og reynslumikilla, sem eiga verk á opnunarsýningu metnaðarfulls nýs sýningarsalar sem var opnaður í Berlín í liðinni viku en galleríið nefnist ForA - Contemporary Art Platform. Í texta sem fylgdi sýningunni úr höfn segir að á hana hafi verið valdir ólíkir listmálarar þar sem valið endurspegli í senn fjölbreytileika og fegurð. Sýnd voru verk eftir 18 listamenn, þar á meðal þungavigtarmenn á borð við Martin Kippenberger, Georg Dokoupil og Donald Baechler. Reinar var við opnun sýningarinnar og situr nú í sóttkví heima hjá sér.

„Ég er annars nýfluttur heim,“ segir Reinar þegar slegið er á þráðinn til hans. Hann segir að þau eiginkonan, Jenný Lárentsínusdóttir, hafi flutt heim frá Brüssel hvar þau hafi verið búsett síðustu þrjú árin og hann verið með vinnustofu. „Það var bara öruggara í stöðunni,“ bætir hann við.

En hann ákvað að skella sér á opnunina í Berlín, annað hafi ekki verið hægt. En hvernig kom til að Reinar, þessi 27 ára gamli listamaður, átti verk á þessari sýningu?

„ForA er nýtt gallerí og vildu eigendurnir vera með grand opnun sem sýndi hvað þau hafa góð sambönd. Þau völdu að sýna verk eftir eldri, virta listamenn og líka eftir nokkra yngri, til að sýna að þau fylgist vel með. Þau hringdu í mig og spurðu hvort ég vildi vera með. Mér þótti það auðvitað skemmtilegt – en það var líka stressandi því ég þurfti að mála ný verk fyrir sýninguna án þess að ég hefði til þess aðstöðu þar sem ég var nýfluttur heim.“

Það eru því nýjustu myndir Reinars sem sýndar eru í Berlín, tvö málverk sem hann segir í „millistærð“.

Gaman á opnuninni

Listamannahópurinn á fyrstu sýningu ForA sýnir að eigendur virðast stórhuga og Reinar staðfestir að svo sé.

„Eigandinn er rússnesk kona, einn listamaðurinn sem á verk á sýningunni er maðurinn hennar. Hún hefur áður rekið gallerí í Berlín og vildi fara aftur í listabransann.“ Opnunin í síðustu viku var liður í eins konar galleríhelgi í Berlín, með fjölda sýninga. „Og það var mjög gaman þrátt fyrir stífar fjöldatakmarkanir í öllum sölum og grímuskyldu. Fólk var greinilega spennt fyrir að mæta á sýninguna og skoða verkin, sem var gaman.“

First contact. Annað málverkanna sem Reinar á á sýningunni í …
First contact. Annað málverkanna sem Reinar á á sýningunni í ForAgalleríinu í Berlín, sem var opnuð í liðinni viku.

Málaði verkin á 40 dögum

Undanfarin ár, meðan hann hefur verið búsettur í Brüssel, hefur Reinar verið að geta sér nafn í evrópsku myndlistarlífi. Hann hefur til að mynda áður sýnt í Berlín.

„Snemma í fyrrasumar var ég með sólósýningu í Seven star-galleríinu þar og svo var ég með sólósýningu í galleríi í Moskvu í vetur,“ segir hann. Blaðamaður hafði einmitt tekið eftir því á netinu, að sýning Reinars var opnuð þar í marsbyrjun, rétt áður en kórónuveirufaraldurinn skall á.

„Það kom þannig til að rússnesk kona sem kom á sýninguna mína í Berlín fyrir tveimur árum var svo ánægð með hana að galleríið hennar bauð mér í helgarferð til Moskvu, að skoða galleríið og vita hvort ég vildi sýna þar. Þetta er afskaplega gjafmilt og gott fólk. Við sömdum um að ég myndi sýna og þau vildu hafa opnunina á fjölsóttri sýningahelgi og fyrir vikið fékk ég í raun minni fyrirvara til að vinna verkin en ég hefði kosið. Ég held ég hafi haft svona 40 daga til að mála alla sýninguna – sem var pínu stressandi,“ segir hann og hlær.

Reinar málaði verkin í Brüssel og flaug svo með þau til Moskvu.

Ekki sýningar hér heima

Reinar segir að hann hafi náð að vera í Moskvu við opnun sýningarinnar ásamt afa sínum helgina áður en veirufaraldurinn lokaði öllu. Þeir hafi rétt sloppið heim áður en reglur um sóttkví voru settar á. Þegar slakað var á reglum í Moskvu í sumar var sýningin opnuð að nýju. Moskvuævintýrum Reinars er þó ekki lokið því galleríið valdi að sýna verk eftir Reinar á sýningarsvæði sínu á myndlistarkaupstefnunni í Moskvu í nóvember. Skiljanlega segist hann vera ánægður með það góða boð.

En stendur ekkert til að sýna á Íslandi?

„Ég væri alveg til í það,“ svarar hann. „Ég hef ekki hingað til ekki fundið fyrir neinum áhuga frá íslenskum galleríum.“

Reinar segist ekki hafa hlotið myndlistarmenntun en hafi farið að taka það alvarlega að mála fyrir um fimm árum, þegar hann var 22 ára. Einu eða tveimur árum seinna helgaði hann sig listinni alfarið.

Þegar Reinar er spurður þeirrar erfiðu spurningar hvernig hann lýsi verkum sínum, hikar hann skiljanlega. „Með hverri sýningu hjá mér hefur orðið ákveðin breyting á verkunum. Ég hef varað galleríin við því að búast ekki við því að verkin verði eins og á síðustu sýningu. En ég hef lagt mikla áherslu á hreyfingu, myndinar eru oft órólegar og ég vinn þær hratt. Ég geri ekki skissur, nota ekki varpa eða slíkt, og í raun er ég sífellt að gera tilraunir og að sjá hvað virkar. Ég mála mikið og hika ekki við að eyðileggja myndir eða mála yfir. Þetta er látlaust ferli enda fór ég ekki í formlegt nám og er því oft að brenna mig á hinu og þessu og læri af reynslunni.

Nú er ég í fyrsta skipti að gera tilraunir með landslag, nokkuð sem ég hef aldrei gert áður. Á fyrri sýningunni í Berlín var ég líka mikið að vísa í ljósmyndir og bíómyndir, og þá ýmislegt sem er að gerast kringum bíómyndirnar.“

Þegar spurt er hvort það hafi verið einhverskonar köllun sem olli því að Reinar hellti sér út í myndlist, þá játar hann því. Foreldrar hans hafi lengið haldið því fram að hann ætti að sinna myndlist. „Ég var svo að steikja hamborgara á veitingastað niðri í bæ og var búinn að fá alveg nóg af því þegar Jenný sagði að ég yrði bara að fá mér eitthvað annað að gera. Ég málaði mynd af henni, úr Suður-Ameríkureisunni okkar og einhver keypti myndina. Fyrir peningana keypti ég meiri striga og málaði fleiri verk sem seldust líka. Þá setti ég upp sýningu sjálfur í atvinnuhúsnæði niðri í bæ. Jenný sagði að ef mér tækist að selja helming verkanna þá gæti ég hætt að vinna og farið bara að mála. Og það tókst – síðan hef ég bara málað,“ segir Reinar.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 15. september. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler