Grínaðist með lítið kynlíf í hjónabandinu

Wayne Rooney er duglegur að koma sér í klandur.
Wayne Rooney er duglegur að koma sér í klandur. AFP

Knattspyrnustjarnan Wayne Rooney er þekktur fyrir að ganga of langt þegar áfengi er annars vegar. Hann á að hafa farið yfir strikið í eftirpartíi góðgerðarleiks í Bretlandi á dögunum. Rooney er sagður hafa grínast með hversu lítið kynlíf hann stundar með konu sinni. 

Á Rooney að hafa sagt að hann hefði ekki stundað kynlíf mjög lengi við manneskju sem sá um sjónvarpsútsendingu leiksins. Manneskjan sem Rooney talaði við var ekki viss hvort hann væri að grínast eða ekki. Heimildarmaður The Sun segir þó líklegt að hann hafi verið að slá á létta strengi. Ummæli Rooneys voru fljót að breiðast út og varð þetta það sem talað var um í veislunni. 

Annar heimildarmaður virtist ekki kannast við ummæli Rooneys. Breska pressan hefur þó fjallað um meint ummæli enda kappinn duglegur að koma sér í klandur og pressan ytra óvægin. Þrátt fyrir allt sem Rooney hefur gert er hann enn kvæntur æskuástinni sinni og á með henni fjóra drengi. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant