Anthony Hopkins þykir sýna stórleik í myndinni Faðirinn (The Father) og er talið líklegt að hann verði tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir frammistöðu sína. Yrði það hans sjötta tilnefning.
Franski rithöfundurinn Florian Zeller gerði myndina eftir eigin leikriti. Hann breytti nafni og aldri aðalpersónunnar til að laga hlutverkið að leikaranum. „Ég skrifaði handritið fyrir hann,“ sagði Zeller við AFP og hrósaði happi að hafa fengið Hopkins til að leika í sinni fyrstu mynd.
Faðirinn er blanda af spennu- og hryllingsmynd og fjallar um mann sem er að missa minnið og tök á veruleikanum.