Söngvarinn Marvin Gaye trónir efst á nýjum lista bandaríska tónlistartímaritsins Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra tíma með plötunni What's Going On, sem kom út árið 1971.
Á plötunni er fjallað um stöðu svartra í Bandaríkjunum og hálfri öld síðar virðist umræðan lítið hafa breyst.
Blaðið hefur tvisvar áður gefið út slíkan lista. Að þessu sinni er þar að finna tvær plötur Bjarkar Guðmundsdóttur. Homogenic er í 202. sæti og Post í 289. sæti.