Streymisveitan Netflix birti í dag fyrstu myndirnar úr fjórðu seríu af The Crown. Serían fer í heild sinni í loftið þann 15. nóvember næstkomandi. Þar má meðal annars sjá fyrstu myndirnar af leikkonunni Emmu Corrin í hlutverki Díönu prinsessu og leikkonunni Gillian Anderson í hlutverki forsætisráðherrans Margaret Thatcher.
Fjórða serían hefst síðla á 8. áratug síðustu aldar í lífi bresku konungsfjölskyldunnar og tekur meðal annars á því þegar Karl Bretaprins kynnist Díönu Spencer, sem síðar varð prinsessa. Helsta umfjöllunarefnið er þó togstreitan á milli Elísabetar drottningu, sem leikin er af Oliviu Colman, og Thatcher þegar sú síðarnefda leiðir Bretland í Falklandseyjastríðið í upphafi 9. áratugarins.
View this post on InstagramChange is coming. 15th November.
A post shared by The Crown (@thecrownnetflix) on Sep 29, 2020 at 4:05am PDT