Hættur með unnustanum eftir tíu ára samband

Karamo Brown er einhleypur á ný. Hér er hann ásamt …
Karamo Brown er einhleypur á ný. Hér er hann ásamt trúði á hryllingssafni í september. Sá fyrrverandi er ekki með á myndinni. AFP

Sjónvarpsstjarnan Karamo Brown úr Netflix-þáttunum Queer Eye er hættur með unnusta sínum, Ian Jordan. Parið trúlofaði sig árið 2018 en var búið að vera saman í tíu ár. Brown nýtti kórónuveirufaraldurinn til að skoða líf sitt vel.

Mennirnir stefndu á það að gifta sig í sumar en brúðkaupinu var freksta vegna kórónuveirufaraldursins. 

„Því var frestað vegna faraldursins en nú er því formlega frestað þar sem unnusti minn og ég, við vorum saman í tíu ár, hættum saman fyrir þremur og hálfum mánuði síðan,“ sagði Brown í viðtali í þætti Ellenar DeGeneres. 

Parið tóku meðvitaða ákvörðun um að hætta saman og fóru meðal annars í ráðgjöf til að hætta saman í góðu. 

„Við vorum ekki tvítugir lengur svo þetta var ekki bara: „Ókei, ég ætla að hætta senda þér skilaboð.“ Þetta snerist meira um að við áttum fjölskyldu og heimili. Hvernig skiljum við? Og það var erfitt. Við fórum í ráðgjöf á netinu, við gerðum margt,“ sagði Brown. 

Að lokum spurði Brown sig hvort að hamingja hans væri honum mikilvæg. Þegar hann svaraði því játandi áttaði hann sig á því að þeir þyrftu að hætta saman. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson