Benjamin Keough hefur verið borinn til grafar. Hann hvílir við hlið afa síns, tónlistarmannsins Elvis Presleys.
Benjamin svipti sig lífi hinn 12. júlí síðastliðinn, aðeins 27 ára gamall. „Benjamin Storm Keough var borinn til grafar í Hugleiðslugarðinum við Graceland. Hann hvílir hjá fjölskyldu sinni, þar á meðal afa sínum Elvis Presley, langömmu sinni Gladys Presley, langafa sínum Vernon Presley og langalangömmu sinni Minnie Mae Presley,“ segir í tilkynningu frá Graceland.
Priscilla Presley, amma Benjamins, minntist hans í fallegri færslu um miðjan júlí þar sem hún sagði fráfall hans vera átakanlegt fyrir alla fjölskylduna.
„Þetta eru einir af myrkustu tímum fjölskyldunnar minnar. Áfallið að missa Ben hefur verið átakanlegt. Að reyna að púsla saman myndinni um af hverju mögulega þetta gerðist hefur níst sál mína. Ég vakna á hverjum degi og bið til Guðs að þetta muni skána. Þá hugsa ég um dóttur mína og sársaukann sem hún fer í gegnum sem móðir. Pabba Bens, Danny [Keough], sem er viti sínu fjær þar sem Ben var einkasonur hans. Riley, sem var svo náin honum og elskaði hann svo. Harper og Finley, sem dýrkuðu Ben. Navarone, sem á erfitt með sorgina og missinn. Hvíldu í friði Ben, þú varst elskaður,“ skrifar Priscilla.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218.