Ráðherrann seldur til sýningar í Bandaríkjunum

Ráðherrann er farinn á flakk um heiminn.
Ráðherrann er farinn á flakk um heiminn. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Sjónvarpsþáttaröðin Ráðherrann í framleiðslu Sagafilm hefur verið seld til sýningar í Bandaríkjunum, Ástralíu, Kanada og Suður-Evrópu.

Cineflix Rights, dreifingaraðili Ráðherrans á heimsvísu, hefur skrifað undir samninga við nýju streymisveituna Topic í Bandaríkjunum um sýningu á þáttunum fyrir bandarískan markað. Einnig hefur verið skrifað undir samninga við SBS í Ástralíu, AMC Networks International í Suður-Evrópu og TVO í Kanada um sýningu á þáttunum.

Þáttaröðin hóf göngu sína á RÚV 20. september síðastliðinn þar sem þættirnir fengu góðar viðtökur og eru sýningar þegar hafnar á SVT í Svíþjóð og YLE í Finnlandi. Fyrr í haust var tilkynnt um tilnefningar Ráðherrans á PRIX Europa-verðlaunahátíðinni og Venice TV Awards.

„Við erum gríðarlega ánægð að sjá Ráðherrann fara á eins stóra markaði og Bandaríkin, Ástralía, Suður-Evrópa og Kanada eru, til viðbótar við Norðurlöndin og Niðurlönd. Mikil vinna hefur farið í að ganga frá þessum samningum og vonum við auðvitað að þessar þjóðir taki vel við Benedikt og hans pólitík, rétt eins og hans heimafólk hefur gert,“ segir Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm.

Háskólakennarinn Benedikt Ríkarðsson kemur eins og stormsveipur inn í íslensk stjórnmál. Þessi óhefðbundni stjórnmálamaður landar embætti forsætisráðherra með óvenjulegri nálgun í kosningabaráttu. Eftir að hann tekur við embætti fara einkenni geðhvarfa að koma fram í fari hans og hegðun. 

Ólafur Darri Ólafsson er í hlutverki óvenjulega ráðherrans en með önnur stór hlutverk í þáttunum fara Aníta Briem, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Leikstjórn var í höndum Nönnu Kristínar Magnúsdóttur og Arnórs Pálma Arnarsonar. Handrit skrifuðu Birkir Blær Ingólfsson, Björg Magnúsdóttir og Jónas Margeir Ingólfsson. Framleiðendur frá Sagafilm eru Anna Vigdís Gísladóttir, Hilmar Sigurðsson og Kjartan Þór Þórðarson.

„Það er afar ánægjulegt að sjá að Ráðherrann höfði til þjóða um víða veröld. Þessar sölur sýna enn og aftur fram á hvað íslenskt sjónvarpsefni er langt komið á þeim örfáu árum sem framleiðsla slíks efnis hefur verið viðhöfð á Íslandi. Samkeppnin er afar hörð um athygli kaupenda en Ráðherrann hefur án efa vakið eftirtekt fyrir að vera öðruvísi sjónvarpsefni. Það gleður okkur sannarlega í Sagafilm,“ segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Sagafilm Nordic í Stokkhólmi, sem sér um alþjóðlega fjármögnun leikins sjónvarpsefnis Sagafilm.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler