Tónlistarkonan Adele mun stýra þætti af Saturday Night Live þann 24. október næstkomandi. Adele tilkynnti um hlutverk sitt í þættinum á Instagram um helgina og viðurkenndi að hún væri skelfingu lostin.
„Ég er svo spennt yfir þessu!! Og líka skelfingu lostin! Í fyrsta skipti sem ég verð kynnir og það fyrir SNL af öllu!!!!,“ skrifaði Adeles undir mynd sína á Instagram.
Hún rifjaði upp að hún hefði komið fram í þáttunum fyrir 12 árum, líka rétt fyrir kosningar. Þá kom hún fram sem tónlistarmaður í þáttunum en nú verður hún í hlutverki kynnisins.
Tónlistarkonan H.E.R. mun koma fram í tónlistaratriði í þáttunum og sagðist Adele var mjög spennt að sjá hana flytja tónlist sína.