Huginn, köttur Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, er haldinn á vit feðra sinna. Huginn fannst dauður í garði nálægt heimili sínu í dag. Kári hafði auglýst eftir honum á samfélagsmiðlum.
Kári greinir frá andláti Hugins á Facebook og segir fjölskylduna sitja eftir í botnlausri sorg. „Leitinni er lokið. Huginn fannst andvana í garði ekki langt frá heimili sínu. Dánarorsök óþekkt. Djúpvitur köttur, fagur og yndislegur horfinn á vit feðra sinna. Við sitjum eftir í botnlausri sorginni,“ skrifar Kári.
Posted by Kari Stefansson on Friday, 23 October 2020