Fyrirsætan Kendall Jenner hélt upp á 25 ára afmælið sitt um helgina. Hún reyndi þó að fela slóð sína og fengu gestir áminningu um að þeir mættu taka myndir í afmælinu en ekki birta þær á samfélagsmiðlum.
Jenner verður 25 ára á morgun, 3. nóvember, en ákvað að halda upp á afmælið um helgina í hrekkjavökubúningi. Veisluhöldin fóru fram á skemmtistaðnum Harriet's Rooftop í West Hollywood í Los Angeles á laugardagskvöldið.
Um 100 manns var boðið í veisluna og þar á meðal voru Justin og Hailey Bieber, Kanye West, Kim Kardashian West, Kylie Jenner, Travis Scott, Scott Disick, Jaden Smith, Paris Hilton, The Weeknd, Justine Skye, Quavo, Doja Cat, Winnie Harlow og Saweetie.
Jenner klæddi sig upp sem Pamela Anderson í Barb Wire.
Samkvæmt heimildum Entertainment Tonight tóku gestir hraðskimunarpróf áður en þeir fengu að koma inn á staðinn. Enginn mátti fara inn fyrr en neikvæð niðurstaða lá fyrir en enginn var með andlitsgrímu í afmælinu.
Jenner hefur hlotið mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum en í síðustu viku var slegið met í greindum kórónuveirusmitum í Bandaríkjunum. „Enginn nema Kendall Jenner heldur risastórt partí með öllum þessum stjörnum án andlitsgríma í miðjum heimsfaraldri. Með reglunni „engir samfélagsmiðlar“ svo enginn kæmist að því,“ skrifaði notandi á Twitter.
no but kendall jenner really threw a big ass party with all those celebrities without masks in the middle of a pandemic with a “no social media” rule so people wouldn’t find out about it.... pic.twitter.com/RcRSUEBQ5o
— ath⁷ (@jeonlvr) November 1, 2020
Ok Kendall Jenner blowing out candles as a masked waiter holds her cake and tries to move out of the way was actually the scariest thing I saw on Halloween pic.twitter.com/o46ri7TJ9W
— Nicholindz Cage (@lolzlindz) November 1, 2020