Helgi fékk gullskífu

Helgi Björnsson og Sölvi Blöndal í höfuðstöðvum Öldu Music en …
Helgi Björnsson og Sölvi Blöndal í höfuðstöðvum Öldu Music en Sölvi er annar eigenda útgáfunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Helgi Björnsson, tónlistarmaður og leikari með meiru, tók við gullsmáskífu í gær fyrir lagið „Það bera sig allir vel“ þar sem því hefur nú verið streymt yfir 500 þúsund sinnum. „Ég hafði svo sem trú á þessu lagi, að það hefði kjörgengi,“ sagði Helgi í samtali við Morgunblaðið í gær, „en svo sem ekkert fram yfir það, í sjálfu sér.“

Helgi segir algjörlega frábært að lagið hafi fengið svo mikla hlustun og spurður hvort lagið verði mögulega táknlag Covid-19 segir hann sposkur að hætt sé við því. Lagið hafi þó ekki verið samið um kófið eitt og sér. „Það var búið að vera svo svakalega ömurlegt veður, endalaust stormur og leiðindi frá nóvember, desember síðasta vetur og áfram fram í janúar og febrúar,“ segir Helgi. Boðskapur lagsins sé sá að þrátt fyrir leiðindin beri sig allir vel, hafi það kósí heima og gleðjist yfir því litla í lífinu.

Þegar kófið verður rifjað upp munu eflaust margir muna eftir kvöldvökum Helga og Reiðmanna vindanna en nýjasta afurð þeirra er sænska tökulagið „Saman (höldum út)“ sem Helgi og Salka Sól syngja. Það má finna hér
Helgi segist hafa verið heppinn í kófinu að því leyti að hafa nóg að gera. „Mér hefur tekist að gera eitthvað í þessu ástandi öllu,“ segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson