Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Floni, mun á fimmtudaginn næstkomandi kynna til sögunnar nýtt ilmvatn sem einfaldlega nefnist Floni Eau De Parfum. Ilminn hannaði Floni í samstarfi við Laugar Spa Organc Skincare og ilmhönnuðinn Andreu Maack.
Ilmurin er ætlaður fyrir öll kyn og sótti Floni innblástur í margar andstæður eins og dimmar vetrarnætur, falleg sumarkvöld, rómantík skemmtanalífsins og látlausar samkomur. Í frétta tilkynningu frá Flona segir að ilmurinn sé fullur af mystík, spennu, kynþokka og frelsi.
Ilmnóturnar eru samblanda af krydduðum og sætum nótum eins og kardimommu, patcholi, greipaldin og frosnu lavender.
Ilmurinn verður fáanlegur í Húrra Reykjavík, Laugar Spa og á floni.is.